Vera - 01.04.2002, Blaðsíða 18
Allar þær stelpur sem ég ræddi
viö og höföu þegar haft kynmök
greindu frá því að það hafi verið
vinkonur þeirra sem urðu þess
valdandi að þær byrjuðu að
stunda kynlíf.
geta valið kom aðallega upp í umræðunni þegar rætt
var um samskipti fullorðinna og unglinga.
Þrýstingur frá jafnöldrum
En þessi valmöguleiki er ekki alltaf virtur í unglinga-
menningunni því unglingar verða fyrir miklum þrýst-
ingi frá jafnöldrum sínum um að byrja að stunda
kynlíf. Þegar viö berum saman ríkjandi hugmyndir í
ýmsum vestrænum samfélögum um mikilvægi mey-
dómsins/sveindómsins er íslensk unglingamenning
sér á báti. Drengir eru að jafnaði ekki undir miklum
þrýstingi frá jafnöldrum sínum um að missa svein-
dóminn á meðan þeir eru í grunnskóla en um leið og
þeir eru komnir í framhaldsskóla og eru ennþá hrein-
ir sveinar verður mikill þrýstingur frá jafnöldrum
þeirra um að þeir byrji að stunda kynlif. Stelpur eru
að öllum jafnaði undir meiri þrýstingi um að byrja að
hafa kynmök og þessi þrýstingur kemur ekki frá
strákum heldur öðrum stelpum. Allar þær stelpur
sem ég ræddi við og höfðu þegar haft kynmök
greindu frá því að það hafi verið vinkonur þeirra sem
urðu þess valdandi að þær byrjuðu að stunda kynlíf.
Mikilvægi vinahópsins og það sem er að gerast inn-
an hans hefur að mörgu leyti úrslita áhrif um það
hvenær unglingar byrja að stunda kynlíf. Hins vegar
er engin línuleg tenging á milli þess að unglingur fari
að stunda kynlíf ef vinir hans eru orðnir kynferðis-
lega reyndir.
Það er gegnum gangandi viðhorf i samfélaginu
að strákar séu alltaf að þrýsta á stelpur um að byrja
að sofa hjá. Vinirnir hafa oftast nær mjög mikil áhrif
í þessum málum og geta ráðið úrslitum um það
hvenær viðkomandi mun byrja að stunda kynlíf.
Olík upplifun kynja af fyrstu
kynlífsreynslunni
Fyrsta kynlífsreynsla íslenskra unglinga er mjög
kynjaskipt. Flest allir strákar lýstu sinni fyrstu reynslu
sem ánægjulegri og ekkert sem þeir bjuggust ekki
við. Allar stelpurnar nema ein greindu frá því að
þeirra fyrsta kynlífsreynsla hafi verið sársaukafull og
full af óánægju. í huga stelpnanna var þetta eitthvaö
sem þær „urðu" að yfirstíga og Ijúka af sem fyrst. Að
þeirra mati, og jafnframt vinkvenna þeirra, var það
viðhorfum er viðhaldið í samfélaginu með því að
telja kynlif vera „eðlilegt" fyrir drengi og æskilegan
þátt í því að verða fullorðinn karlmaðaur. Stúlkum er
hins vegar kennt að hátta sínu kynlífi innan sam-
bands og þær sem „fara yfir strikið" I sinni (kynlífs)
hegðun eru vanalega kallaðar druslur og hórur.
Mikilvægi þess að hafa val
En hvernig upplifa íslenskir unglingar og haga kyn-
lífi sínu? Mastersritgerð mín við háskólann í Amster-
dam, Gendered reality? How lcelandie teenagers of
the age 15 - 18 conduct their sexual behaviour in
relation to their gender identity, er byggð á fimmt-
án eigindlegum viðtölum sem tekin voru við stelpur
og stráka í þessum aldurshópi um kynhegðun þeirra.
Af þessum fimmtán einstaklingum sem ég tók viðtal
við höfðu tíu haft kynmök. Ein stúlka hafði misst
meydóminn ellefu ára gömul, tveir strákar tólf ára,
tveir strákar og ein stelpa þrettán ára, þrjár stelpur
fjórtán ára og ein stelpa fimmtán ára. Ég vil hér með
taka fram að þessar tölur eru eflaust ekki lýsandi fyr-
ir alla unglinga. Að mínu mati er meðalaldur flestra
unglinga við fyrstu kynmök í kringum fimmtán ára,
eins og aörar kannanir hafa sýnt fram á. Hins vegar
er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því að það eru
til undantekningar sem vert er að athuga. Vegna
fjölda þeirra stelpna sem höföu misst meydóminn er
vert að taka fram að kynjahlutfall í rannsókninni var
níu stelpur og sex strákar.
I þeirri umræðu sem á sér stað I „unglingaheim-
inum" er áherslan á val mjög mikilvæg. Allir ungling-
arnir sem ég tók viðtal við lögðu mikla áherlsu á að
vera gefinn kostur á að velja hvenær og með hverj-
um þau stunduðu kynlíf. Það sem vakti áhuga minn
var að þetta val var þó ekki án takmarkana. Ef ein-
staklingur var kominn á tvítugsaldur virtist mögu-
leikinn á því að hafa val ekki lengur við lýði. Hver sá
sem var ennþá hrein mey eða hreinn sveinn eftir tví-
tugt var ekki talinn með réttu ráði. Áherslan á að
hafa val um það hvenær maður vill missa meydóm-
inn/sveindóminn er þó aðallega bundin við að vera
ekki undir þrýstingi frá fullorðnum. Mörgum fannst
þessi sífelldi þrýstingur foreldra og annarra fullorð-
inna einstaklinga um að byrja ekki að stunda kynlíf
of snemma vera yfirþyrmandi. Mikilvægi þess að
18