Vera


Vera - 01.04.2002, Qupperneq 21

Vera - 01.04.2002, Qupperneq 21
Við settumst inn á kaffihús til að spjalla og ræðurn fyrst hvað þeim finnist um þær umræður um kynhegðun unglinga sem átt hafa sér staö að undanförnu. Þau segja að þar hafi fullorðnir mest verið að tala um unglinga en ekki við þá. Helst sé rætt við þau um kynsjúkdóma og getnaðarvarnir, hvað geti gerst ef þau noti þær ekki, einnig um ungar mæð- ur sem verða óléttar mjög ungar. Það sé sem sagt mest nei- kvæð umræða. Þau hafa að sjálfsögðu heyrt rætt um hve slæmt kynlif unglinga sé og í þeim efnum finnst þeim að bara sé rætt um hópkynlíf og aðra neikvæða hluti. Hvaðan haldið þið að unglingar fái upplýsingar um kynlíf? Pési: Frá öðrum unglingum. Ekki frá foreldrum, það er alveg pottþétt. En það væri lang best ef þau fengju upplýsingarn- ar þaðan því þá gætu unglingar treyst foreldrum sínum og þeim upplýsingum sem þau fá. Nadía: Ég held að unglingar fari líka inn á vefsíður, t.d. femin.is, einkamál.is og Doktor Love. Það er auðvitað miklu betra að spyrja einhvern sem er reyndur heldur en t.d. að spyrja vinkonu sína sem er ekkert reyndari í kynlífi en þú sjálf. Dagný: Ég held að flestir sem ég þekki séu ekki að spyrja um kynlíf yfirleitt. Það er ekki mikið talað um það, þau bara prófa sig áfram. Siðan er sagt eftir á að þau hefðu viljað vera frædd aðeins meira. Hvernig finnst ykkur viðhorf fullorðinna vera á kynlífi unglinga? Hvaða fræðslu mynduð þið helst vilja fá? Dagný: Bara opnari umræða yfir höfuð, þetta ætti ekki að vera svona mikið tabú dæmi. Að krökkum þætti bara alveg sjálfsagt að spyrja foreldra sína. Ég tala mikið við eldri syst- ur mína, en hún er líka bara tuttugu og sex ára. Pési: Mamma mín er dálítið á móti þessu en pabbi minn skil- ur mig. Nadía: Það ætti að vera meiri fræðsla um það hvernig fólk á að prófa sig áfram í kynlífi í stað þess að tala bara um kyn- sjúkdóma. Krissi: Eina skiptið sem einhverjir fullorðnir hafa talað við mig um þetta var þegar ég fór út að borða með pabba og mömmu. Þá spurði pabbi hvort ég væri byrjaður á þessu og ég sagði já. Þá kom einhver ræða um að ég þurfi að passa mig og allt þetta sama, sko. Það er eiginlega það eina sem maður fær að heyra aftur og aftur. Pési: Það er búið að stimpla kynsjúkdóma inn í hausinn á manni síðan maður var krakki. Alltaf það sama aftur og aft- ur, maður veit þetta. Nadía: Kynfræðslan í níunda bekk er mjög lítil og mjög tæknileg. Pési: Þaö ætti að kenna Tantra i skólunum (ha ha ha). Kenna okkur það góða við kynlíf. Hvað teljið þið vera gott við kynlíf? Nadía: Ég held að fólk, sérstaklega unglingar, einblíni alltof mikið á að fá fullnægingu út úr kynlífi. Fólk gerir sér alltof miklar vonir um það þegar það byrjar að stunda kynlíf. Samt vita lang flestir að fyrsta skiptið er ekki þannig. Svo heldur það að eftir kannski þrjú skipti eigi allir að fá fullnægingu. Svo fær það kannski ekki fullnægingu og heldur þá að þaö sé eitthvað skrýtið, að það sé eitthvað að þeim. Mér finnst það oft vera þannig. Finnst ykkur kynhegðun stelpna og stráka vera ólík? Nadía: Já. Pési: Kynlíf stelpna og stráka er allt öðruvísi. Það er miklu mikilvægara fyrir stráka að missa sveindóminn en fyrir 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.