Vera - 01.04.2002, Side 22
>agný: Ég held aö þaö séu frekar strákar
em leita í klám og þaö er meira miðað viö þá.
ólk er líka oft að grínast, segir: „Hei, veröur
etta ekki bara villt kynlífspartý?" En öllu
amni fylgir einhver alvara.
Hvers vegna er það þá öðruvísi með stelpurnar? Af hverju
eru þær ekki öfundaðar fyrir að sofa hjá mörgum strák-
um?
Nadía: Eg held að það sé bara af því að stelpur eru öðruvísi.
Þú lítur öðruvísi á stelpur en stráka. Strákar hafa meira leyfi
til að gera þetta en stelpur. Meydómurinn hjá stelpum er
miklu mikilvægari en hjá strákum.
Pési og Krissi: Já.
Nadía: Það skiptir miklu meira máli því það er miklu erfið-
ara fyrir stelpur að missa meydóminn en fyrir stráka.
Dagbjört: Hverjir halda uppi þessum hugmyndum, að kyn-
hegðun stelpna eigi ekki að vera eins frjálsleg og stráka?
i
I
stelpu að missa meydóminn. Strákar eru taldir svalari ef þeir
sofa hjá mörgum stelpum en stelpur eru bara kallaðar hórur
fyrir að sofa hjá mörgum strákum, í tómu tjóni.
Dagný: Ég er sammála þessu. Kynhegðun stráka er ókei en
stelpur fá ekki að eiga heima í þjóðfélaginu. Ef stelpa er búin
að sofa hjá, hún þarf ekki einu sinni að vera búin að sofa hjá
neinum, samt getur hún fengið þennan stimpill á sig strax.
Finnst ykkur þessi hugmyndafræði vera enn við lýði að
strákar megi sofa hjá en ekki stelpur?
Dagný: Ég held aö þetta sé bara hefð. Ef einhver stelpa er
búin að vera með ofsalega mörgum strákum þá hugsar mað-
ur ósjálfrátt: „Hei, djöfulsins drusla er þetta." Þetta eru bara
ómeðvitaðir fordómar.
Pési: Þetta eru bara óskráðar reglur sem engum er beint
kennt og enginn veit hvaðan komu.
I umræðunni um kynhegðun unglinga undanfarið er
mikið talað um áhrif klámvæðingar á hugmyndir ungs
fólks um kynlíf. Teljið þið að klám hafi áhrif á hugmynd-
ir unglinga um kynlíf?
Dagný: Já, en þetta er þó að minnka.
Nadía: Strákar eru kallaðir druslur og hórur ef þeir sofa mik-
ið hjá.
Krissi: Ég meina, geta þau ekki bara sjálfum sér um kennt.
Við fáum enga fræðslu, sem viö ættum að fá, áður en við
förum að sjá eitthvað svona.
Dagný: Já, en reyndar bara af stelpum. Mér finnst það vera
meira viðurkennt að strákar stundi meira kynlíf en stelpur.
Nadía: Já, reyndar bara af stelpum, ég veit það. En samt er
líka fullt af stelpum sem sækjast í það því þær eru þannig. En
það vill enginn sofa hjá stelpu sem er búin að vera að sofa
hjá út um allt.
Strákar, kallið þið aðra stráka hórur fyrir að sofa hjá
mörgum stelpum?
Krissi: Neiiii.
Pési: Ha ha.
Krissi: Ég held að ef strákur er með fleiri stelpum en hinir
strákarnir, þá sé hann bara öfundaður fyrir það. Hann er ekki
gagnrýndur fyrir það.
Pési: Litlir krakkar sjá þetta, eins og Undirtónar, það er
ókeypis blað og er útum allt. Þegar krakkar sjá þetta hugsa
þeir, hei, kannski ég geri þetta. Það er fáránlegt að segja að
kynlíf sé svona, því það er ekki svona og mun aldrei verða
svona.
Nadía: Ég held að það fari líka eftir þroska fólks. Ef einhver
hefur horft mikið á klámmyndir og fer svo að sofa hjá stelpu
þá skiptir máli hvort hann sé nógu þroskaður til að vita að
kynlíf er ekki eins og það er sýnt í klámmyndunum og á ekki
að vera svoleiðis.
Dagný: Ég held að það séu frekar strákar sem leita í klám og
það er meira miðað við þá. Fólk er líka oft að grínast, segir:
„Hei, verður þetta ekki bara villt kynlífspartý?" En öllu gamni
fylgir einhver alvara.
Pési: Fólk sér svona og langar aö prófa þetta í einhverju
partýi.
22