Vera - 01.04.2002, Page 27
Fræösla fyrir fræðara
Við hjá Iþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur byrj-
uðum sl. haust á fræðslu fyrir starfsfólk félagsmið-
stöðva um kynhegðun unglinga. Lögð var áhersla á
siðferðilegar vangaveltur í starfi og hvernig við ræðum
við unglinga um kynlif. Við sem sáum um fræðsluna
fundum að þörfin fyrir þessa umræöu var mjög mikil og
starfsfólk lendir oft í siðferðilegum vanda í starfi sínu.
Spurningar eins og: Hvað gerum við þegar við verðum
vitni að því að 14 ára gömul stúlka er að „gefa blowjob"
(munnmök) inni á klósetti um miðjan dag? Hvað skal
Rétt eins og viö tölum um forvarnir í fíkni-
efnamálum þá er aö sama skapi mikilvægt
aö hefja forvarnavinnu í kynlífsmálum.
segja þegar unglingar spyrja hversu gömul við vorum
þegar við „gerðum það" fyrst. Hvað gerum við þegar við
heyrum að Sigga hafi tekið þrjá um helgina, Gunni hafi
áreitt Dísu kynferðislega o.s.frv. Mörgum þessara
spurninga er vandsvarað og eflaust ekkert eitt rétt svar.
Við sem stóðum að fræðslunni lögðum áherslu á að
starfsfólkið væri fyrirmyndir unglinganna og að for-
dómalaus svör væru af hinu góða. Aætlað er að
fræðsla sem þessi verði hluti af nýliðafræðslu sem
haldin er fyrir nýtt starfsfólk á ári hverju.
Fræðsla sem þessi er dæmi um hvernig hægt er að
stuðla að opnari umræðu um þessi mál. Það er mikil-
vægt að foreldrar, skóli, starfsfólk félagsmiðstöðva,
íþróttaþjálfarar og aðrir aðilar sem vinna með ungu
fólki geti rætt opinskátt um kynlíf og leiðbeint
unglingum á ábyrgan hátt. Til þess þarf að opna
umræðuna og veita þeim sem starfa með ungu fólki
sérstakar leiðbeiningar.
-húsbúnaður með sál
Tökum við og seljum nota&a muni
Nytjamarkaður SORPU og
líknarfélaga
Hátúni 12, sími 562 7570
OpiS virka daga kl. 12-18