Vera - 01.04.2002, Side 44

Vera - 01.04.2002, Side 44
Missy Elliott Miss E ...So Addictive Þetta er þriðji diskur þessarar frábæru söngkonu sem er frá Portsman í Virgin- íu, í suðurríkjum Bandaríkjanna. Hún hóf feril sinn með hljómsveitinni Sista árið 1991, en sú hljómsveit náði aldrei að gefa út plötu. Hins vegar hélt Missy áfram að gera tónlist og var uppgötvuð fyrir hæfileika sína til að semja góð lög. Hún hefur samið fyrir fullt af stjörnum, t.d. Aaliyah, Christina Aguilera, Whit- ney Houston og Destiny's Child svo eitthvað sé nefnt. Hennar fyrsta plata kom hins vegar út 1997 og fékk nafnið Supa Dupa Fly. Síðan kom Da Real World 1999 og nýjasta afurðin, So Add- ictive, kom út 2001. Hún bæði syngur og rappar á þess- um diski, og er í raun óvenjulega fjöl- hæf. Hlustandinn fær til að byrja með á tilfinninguna að hér séu margar söng- konur/rappkonur á ferö, en hún er ein í öllu, en fær náttúrulega til sín fullt af góðu fólki í heimsókn. Þar er um að ræða stjörnur eins og Jay Z, Eve, Met- hodman, Redman, Ludacris, Ginuwine og Busta Rhymes, en hún sjálf er þó alltaf í aðalhlutverki. Timbaland er upptökustjórinn hennar og hefur verið á öllum þremur plötunum. Þetta er greinilega kona með bein i nefinu, því hún stofnaði sitt eigið plötuútgáfufyr- irtæki, The Gold Mind, sem gefur út plöturnar í samvinnu við Electra. Það má segja að tónlistin á þessari þriðju plötu Missy sé tviskipt, annars vegar mjög sexí soulskotna r og b ballöðu- tónlist, með fallegum röddunum, og textum sem fjalla um hvað hún sé nú 44 góð og frábær, og besta kona í heimi og hvað allir ættu í raun að vera skotn- ir í henni, og svona „þú ert fallegur ég ætla að reyna við þig" -texta, og hins vegar harðari hipphopp-tónlist þar sem hún er að fjalla um djamm og partý og líka um að hún sé best í bransanum. Síðan eru tvö leynilög og þar er lof- gjörð til Jesúm yrkiefnið. Þetta er því ekki mjög heilsteypt plata, tónlega séð, en sama stemningin og sama sándið á öllum lögum virkar sem lím, og því rennur platan vel í gegn, sérstaklega eftir nokkrar hlustanir. Ýmis skemmtileg hljóð og hljóð- brellur er að finna, og sumt sem kemur á óvart, eins og stopp á óvæntum stöð- um, og óvenjulegar breytingar á lögum upp úr þurru. Missy Elliott er náttúru- lega frábær söngkona, og framúrskar- andi lagahöfundur líka, og það er fyrst og fremst því að þakka að þessi diskur er eins góður og hann er. En það er líka einhver barnsleg gleði sem fær að fljóta með, fólkið fær að leika sér, það er ekki verið að pressa á þá sem koma fram á disknum að taka hlutina of al- varlega, þótt allir séu fagmenn fram í fingurgóma. í sumum laganna finnst manni eins og maður sé á leiðinni á djammið með Missy Elliott og hún sé að segja manni kjaftasögur um fólkið og staðina sem hún þekkir, og hvaö hafi gerst þar síðustu helgi. A-Camp A-Camp Þetta er fyrsta sólóplata söngkonunnar hugljúfu Ninu Persson, sem er þekktust fyrir að syngja í sænsku ofurpopp- hljómsveitinni The Cardigans. Nina og vinur hennar Niclas Frisk voru að bera saman plötusöfnin sín á barnum eitt kvöld árið 1997 og komust að því að þau áttu heilmargt sameiginlegt i þeim geiranum. Hljómsveitin var eiginlega stofnuð út frá þessum samræðum, og fljótlega fóru lögin að veröa til. Þau tóku helling upp árið 1998, en ekkert varð úr plötuútgáfu þá. Svo var það árið 2000 að Nina hafði loksins tíma til að kíkja betur á útgáfumál A-Camp og fékk til liðs við sig upptökustjórann Mark Linkous, og A-Camp fóru til Bandaríkjanna til að laga gömlu upp- tökurnar, og bæta nýju við og gera allt tilbúið til útgáfu. Útkoman er blanda af sætum og grípandi popplögum og þjóðlagakán- tríi, allt undir smá Bítlaáhrifum. Hljóm- urinn er djúpur og stundum angurvær, og greinilega mikið búiö að vinna með útsetningarnar á lögununi. Nina er höfundur flestra textanna á plötunni, en er skrifuð fyrir einu laganna líka. Hér eru á ferðinni persónulegir og skemmtilegir textar, ekki of mikið verið að velta sér upp úr þungum málefnum, heldur meira líðan líðandi stundar. Nina er ágætis textahöfundur en ekki siðri lagahöfundur þvi lagið sem hún á er að mínu mati langbesta lag disksins, og ég vona að á næstu plötu hennar verði eingöngu um hennar lög að ræða. Það er líka merkilegt að þau þrjú lög sem hún samdi ekki textana við á þess- um diski eru líklega minnst sannfær- andi lögin. Það er eins og hún hafi ekki sama sannfæringarkraftinn og sömu stemninguna í röddinni ef hún er að syngja eitthvað sem hún sjálf átti eng- an þátt í að semja. Hljóðfæraleikur er mjög góður á plötunni allri, og mikið um stálgítara, slædgítara, kjöltugítara, munnhörpur, lifandi strengi og allt mögulegt annað sem gerir stemninguna dálítið þjóð- lagalega og lifandi. Það er samt óum- flýjanlegt að sykurhúðuð rödd Ninu býr til galdurinn, og fyrir vikiö verður þetta allt dálítið poppað. Það virðist vera eitthvað gegnumgandandi við hljóm- sveitir sem eiga ættir sínar að rekja til Svíþjóöar, að það er afskaplega stutt í þessar sætu, góðu grípandi poppmeló- díur. Hér er því um að ræða svona „feel good" plötu sem grípur mann strax, en ekki er víst að hún endist von úr viti.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.