Vera - 01.04.2002, Side 48

Vera - 01.04.2002, Side 48
Queen Latifah eöa Dana Owens er 33 ára rappsöng- kona og leikkona í sjónvarpsþættin- um „Living Single". Var í kvenna- rapphljómsveitinni Ladies Fresh sem gaf út lagið „Wrath of My Madness" áriö 1988. Ári seinna kom út platan All Flail The Queen (1989) og innihélt hún meðal annars: soul, dub reggae, hip-hop og danstónlist sem varð til þess að platan náði til gífurlega fjölbreytts hóps hlustenda. Platan seldist vel og fjalla margir textarnir um stjórnmál og feminisma. Hún hefur gefið út þrjár plötur í viðbót: Nature Of A Sista' (1991), Black Fteign (1993), Order In The Court (1998). Blaek Reign var gefin út í minningu bróður hennar og fékk hún Grammy verðlaun árið 1995 fyrir lagið U.N.I.T.Y. Árið 1997 hlaut hún svo Soul Train verölaunin „Lady of Soul". Queen Latifah sýndi fram á að konur geta verið gáfaðar og fallegar og gagnrýndi karlkyns rappara fyrir að sýna fallegt kvenfólk einungis til skrauts eða sem einhvers konar kynlífs leikföng í myndböndum sínum. Er ein af fyrstu frum- kvöðlum kvenrappara. Hún byrjaði sem plötu- snúður á miðjum ní- unda áratugnum (mid- '80s) áður en hún fór sjálf að rappa. I byrjun 10. áratugarins (’90s) gaf hún út lög á borð við „Funk Vibe" og með því náði hún athygli Guru sem ásamt DJ Premier studdu hana til að gefa út lagið „Total Wreek" 1994. Það lag vann strax hylli gagn- rýnenda, sérstaklega vegna þess að það inni- heldur flotta blöndu djass áhrifa og neðan- jarðar tónlistar. Fyrsta plata hennar Kollage (1996) inniheld- ur vinsæl lög eins og „Uknowhowwedo" og „I confess". Hef- ur gefið út plötuna BB Queen. Bahamadia stjórnar nú eigin útvarpsþætti í Philadelphiu sem kallast B-Sides (B-hliðar). Bahamadia C=»|-í||| IfinPC er ára söngkona, leikkona, leik- OQI Ull JUIICo rjtaSkáld og feministi. Hún er ekki venjulegur rappari heldur það sem kallað er „Slam Poet" sem er nokkurs konar blanda af rappi og Ijóðlist. Hún endurgerði lag Gil Scot-Heron (fyrirrennari rappsins, flutti Ijóð undir jazz tónlist) „Your Revolution" með DJ Vadim þar sem hún talar um hip hop sem byltingu. Bylt- ingu sem tekur ekki konur með, enda séu karlrembu athuga- semdir í næstum því ööru hverju orði flestra rappara. Var á forsíðu októberheftis MS fyrir leikritiö „Women Can't Wait" sem hún samdi og leikur sjálf í. Leikritið fjallar um átta kon- ur sem allar eru undirokaðar með kúgandi lögum í heima- löndum sínum og hefur það hlotið mikið lof gagnrýnenda. www.sarahjones.ee Rah Digga Er frá New Jersey og rappaði fyrst með hljómsveitinni Twice the Flavor en byrjaði fljótlega í hljómsveitinni Da Outsidaz, með Eminim og fé- lögum. Varð fræg fyrir að rappa með Bahamadia komin átta mánuði á leið, en það er meöal annars ástæðan fyrir því að Q-Tip frá hljómsveit- inni Tribe Called Quest tók eftir henni. Hann fór með hana upp í plötufyrirtækið Elektra og lét Busta Rhymes hlusta á hana. Busta Rhymes leist strax mjög vel á hana og bauð henni að vera með í hljómsveit sinni The Flip Mode Squad. Rah leiðir nýja kynslóð af kvenkyns röppurum sem geta komið með hráar rímur án þess að þurfa að nota kynþokkann eða útlitið til að komast áfram. Hún gaf út fyrstu plötu sína árið 1999, Dirty Flarrieter\ platan er nefnd í höfuðið á Harriet Tubman. Rah hefur viljandi bara eitt lag með Busta Rhymes á plöt- unni til að undirstrika að þetta sé plat- an hennar og til þess að hún verði metin að verðleikum en komist ekki áfram á nafninu hans. Foxy Brown ™ Áður en hún byrjaði aö gera sína eigin tónlist kom hún fram í nokkrum vin- sælum R &. B rapp lögum eins og „You're Makin' Me High" meö Toni Braxton og „I Shot Ya" með L.L. Cool J. Tvær fyrstu plöturnar hennar, III nana og Chyna doll, seldust i yfir 4 milljón- um eintaka. III Na Na náði 7. sæti á vinsældalista fyrstu vikuna sem hún kom út og Chyna Doll, sem kom út 1998 náði fyrsta sæti á vinsælda- lista. Nýjasta platan hennar Broken Silence (2001) er ólík hinum fyrir þær sakir að hún inniheldur mun minna af frægu tónlistarfólki. Foxy Brown hefur verið gagnrýnd fyrir að gera mikið út á kynlíf í text- um sínum, klæðaburði og myndböndum. www.foxybrown.net 48

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.