Vera


Vera - 01.04.2002, Qupperneq 59

Vera - 01.04.2002, Qupperneq 59
Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars sl. birtist grein í Morgunblaðinu sem bar yfirskriftina „Konur eiga að mega vera fallegar." Þar gagnrýndu aðstandendur Ungfrú ísland.is keppn- innar unga femínista fyrir það að „vera á móti því að konur líti vel út" og benda réttilega á að fegurð og kven- frelsi geti farið saman. í samfélagi nú- tímans, þar sem ímyndaiðnaðurinn er allsráðandi, hefur krafa frelsissinna um „að konur megi vera fal- legar" hins- vegar snúist upp í kvöð. Krafa nútim- ans á ungar stúlkur er sú að þær „verði" að vera fal- legar til þess að teljast gjaldgengar í samfélaginu. Fegurðin er h i n s v e g a r skilgreind i eintölu og til þess aö öðlast rétta „lookið" er þess krafist að konur (og i auknum mæli karlar líka) eyði sí-aukn- um tíma og peningum I að móta lík- amann í það form sem við viljum sýna umheiminum og umheimurinn krefst. Fegurðariðnaðurinn gefur skít í marg- breytileikann og leitast við að móta alla í sama mótið. i stað þess að fagna því að mannfólkið er af öllum stærðum og gerðum, og fegurðin hefur ótal andlit, sitjum við uppi með þröngt skil- greinda staðalmynd af fegurð þar sem viðmiðin eru „fótósjoppuð" súpermód- el og poppstjörnur sem birtast á skján- um og prýða forsíður glanstimarita. Venjulegar konur geta ekki annað en fölnað í samanburðinum og sjálfs- traust sem byggir fyrst og fremst á út- litinu getur ekki risið hátt. Aö hafa kynferðislegt vald Takmarkalaust frelsi kvenna yfir líkama sínum hrekkur skammt ef frelsinu fylg- Kynferöislegt vald þýðir að konur taka aðeins þátt í þeim kynlífsathöfnum sem veita þeim sjálfum unað og sælu. Valdið gefur þeim jafnframt styrk til þess að neita að taka þátt í kynlífsathöfnum sem veita þeim litla sem enga kynnautn, en klámiðnaðurinn hefur hafið til skýjanna. ir ekki vald, fullt vald kvenna yfir kynferði sínu og líkömum. Kynferðislegt vald þýðir að konur taka aðeins þátt í þeim kynlífs- athöfnum sem veita þeim sjálfum unað og sælu. Valdið gefur þeim jafn- framt styrk til þess að neita að taka þátt í kyn- lífsathöfnum sem veita þeim litla sem enga kynnautn, en kiámiðnaðurinn hefur hafið til skýjanna. Valdinu fylgir síðan ábyrgð. Ábyrgð sem krefst þess að konur hugsi vel um þennan eina lik- ama sem þeim er gefinn og hlúi að honum. Konur verða að bera þá virð- ingu fyrir eigin líkama að þær leggi hann ekki í hættu til að uppfylla óraunhæfar útlits- og tískukröfur sem bæði skemma og særa. Er sílikon að verða norm? Fegurðariðnaðurinn nærist á þvi aö ala á óánægju okkar með það sem náttúr- an gaf og fá okkur til að fjárfersta i „breyttum og bættum líkama." Konur þurfa að losa sig við óæskileg likams- hár, berjast við aukakíló og halda kroppnum í formi, en sú barátta getur snúist upp í sjúklegt ástand og leitt til dauða. Þá er milljónum eytt I ýmiskon- ar undrakrem og mistraustar aðferðir til að viðhalda æskuþokka og ómót- stæðilegri fegurð. Því virðast þannig engin takmörk sett hversu lengi er hægt að blóðmjólka hinn kvenlega lík- ama og nú síðast hefur peningamask- ína fegurðariðnaðarins sagt marg- breytileika brjósta stríð á hendur. Heil- brigðar og velskapaðar ungar stúlkur flykkjast nú að skurðarborðum þar sem þær leggjast undir „líknandi" hníf lýta- lækna til þess að láta sílikonfylla brjóst sín. Engar tölur liggja fyrir um fjölda slíkra aðgerða. Lýtalæknir sem ung blaðakona Veru heimsótti fyrir rúmu ári sagðist gera slíkar aðgerðir á færi- bandi og hann hafði framkvæmt sex sílikonaðgerðir vikuna á undan. Flann hvatti Verustúlkuna eindregið til að láta bæta 260-280 grömmum í hvort brjóst, og sagði „Því fyrr því betra." (Vera 1/2001) Þá hefég haft spurnir af vinahópum þar sem sílikonfyllt brjóst eru nánast orðin norm. Tvítug stúlka úr Kópavogi sagði þannig frá því að sjö vinkonur hennar væru búnar að fá sér sílikonfyllingar. Skaðleg áhrif á heilsufar Þessi „sílikonsprengja" er ótrúleg í Ijósi þeirrar staðreyndar að aðgerðin er kostnaðarsöm, sársaukafull og getur valdið varanlegu heilsutjóni. Fyrir rúmu ári kostaði slík aðgerð 170.000 krónur, en hægt var að setja hana á raðgreiðslur. Ung stúlka sem gekkst undir sílikonaðgerð lýsti því að sárs- aukinn fyrst á eftir hafi verið nánast óbærilegur og að hún hafi ekki getað staðiö í fæturna í um það bil viku eftir aðgerðina. Þá hafa rannsóknir sýnt að sílikon getur haft skaðleg áhrif á heilsufar viðkomandi bæði til lengri og skemmri tíma. í einhverjum tilfellum þarf að fjarlægja púðana strax vegna sýkinga. Meðal þekktra langtímaáhrifa eru sjálfsofnæmi og einkenni sem líkj- ast síþreytu sem stafa af því að púð- arnir leka og sílikonið seitlar út í lík- amann og hefur lamandi áhrif á ónæmiskerfið. Þá benda nýlegar rann- sóknir til þess að sílikonpúðar endist mun skemur en haldið hefur verið fram, og hugsanlega þurfi að skipta um á 5 - 10 ára fresti. Loks má nefna að í um 10% tilfella missa konur alla tilfinningu I geirvörtum, eða næmni þeirra dofnar verulega. Með því að fara í sílikonaðgerð setja stúlkur því hið út- litslega í öndvegi. Það að gleðja augu þeirra sem á brjóstin glápa er tekið fram yfir eigin kynnautn og þá sælu sem örvun geirvörtunnar getur fylgt. Út frá því sjónarhorni má segja að hlutgerving kvenna nái hámarki sínu í sílikonfylltum brjóstum. Það að vera „áhorfanleg" verður markmið í sjálfu sér. Ekta brjóst meriklegri en „óekta"? Viðbrögð femínista við sílikonaðgerð- um hafa einkennst af harðri og þarfri samfélagsgagnrýni á þröngt skilgreind fegurðarviðmið, þar sem aðeins ein
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.