Vera - 01.04.2002, Síða 72
Hvernig á að vera og
hvernig á ekki að vera?
Ég er orðin svolítið leið á þeirri ímynd kvenna
sem fjölmiðlar, auglýsingar og svokallaður
tískuheimur hefur skapað. Samkvæmt henni
eru allar konur lýtalausar, þvengmjóar, með
stór löguleg brjóst, vel klæddar og með stút á
vörunum. Oftar en ekki fjalla blöð og tímarit
um útlit og heilsu kvenna, hvernig á að vera og
hvernig á ekki að vera, hvers konar brjóst eru
„inn" og hvað er hallærislegt hverju sinni. Þeg-
ar maður fer í fataverslanir eru stærðirnar oft
frekar fyrir unglingsstúlkur sem eru varla byrj-
aðar á kynþroskaskeiðinu heldur en venjulegar
fullþroskaðar konur. Þá eru ónefndar allar þær
vörur sem verið er að selja til að megra sig, líta
betur út, lifa lengur og ég veit ekki hvað.
í ÁSK.RJFT
LÍFRÆNT RÆKTAÐ GRÆNMETI
„Valkostur fyrir vandláta"
Heilbrigði og hollusta fyrir neytendur sem vilja fá
úrvais grænmeti beint
frá framleiðanda.
Tómatar • Gúrkur • Paprikur
Kirsjuberjatómatar • Chile-pipar • Gulrætur
Sallad • Kryddjurtir • Tejurtir
Kartöflur • Kál • Rófur
Upplýsingar og frekari útfærslu gefa:
Þórður G. Halldórsson og Karólína Gunnarsdóttir
Akur, Laugarási
801 Selfoss
sími: 486 8983 e-mail: akurbisk(a)isholf.is
Það sem er svo slæmt er að alltof margar konur hafa þessa
kvenímynd meðvitað eða ómeðvitað sem sína fyrirmynd og
vilja gera margt til þess að líkjast henni, kaupa alls kyns duft
og pillur, fara í lýtaaðgerðir og fleira. Eitt af því sem marg-
ar konur gera til að reyna að líkjast ímyndinni er að byrja á
einhvers konar líkamsrækt. Það er að sjálfsögðu frábært
þegar fólk fer að hreyfa sig og leggja rækt við líkama sinn.
EN það er hræðilegt þegar konur byrja á röngum forsendum
í líkamsrækt. ALLTOF margar konur stunda líkamsrækt ein-
ungis með það markmið að grennast...og það STRAX, helst í
gær! Þær hamast og hamast, borða oft á tíðum of lítið og
gefast svo upp þegar árangurinn lætur á sér standa. Þá upp-
lifa þær vonbrigði og sjálfsmyndin býður hnekki. Þessu
VERÐUR að breyta. Við erum allar mismunandi í vextinum,
sem betur fer. Sumar eru perulaga, aðrar eins og epli,
stundaglas, kubbslaga eða þvengmjóar og hvernig sem við
erum þá eigum við að njóta þess sem Guð gaf okkur. Allar
konur eru æðislegar eins og þær eru en hver og ein þarf að
finna sér leið til að rækta sjálfa sig að innan og utan og
hætta að eltast við ímyndir umhverfisins. Konur, sem og
karlar, eiga ekki að hreyfa
sig útlitsins vegna heldur
heilsunnar og ánægjunn-
ar vegna. Bætt heilsa og
betri líðan í kjölfar reglu-
legrar hreyfingar og
neyslu hollrar fæðu skilar
sér svo aftur á móti með
bættu og hraustlegra út-
liti...ekki öfugt.
Hreyfing hluti af
daglegu lífi
Það sem verður að breytast eru viðhorf okkar og kröfur til
sjálfra okkar og við verðum að gera okkur grein fyrir því að
það sem við gerum á að vera á okkar eigin forsendum, ekki
annarra. Þegar tekin hefur verið ákvörðun á réttum for-
sendum um að gera hreyfingu hluta af lífsstíl sínum er gald-
urinn að koma skipulagi á hlutina, gera hreyfinguna hluta af
daglegu lífi. Það er allt hægt með góðu skipulagi og vilja og
það er ekki endalaust hægt að segjast ætla að byrja á morg-
un! Ef maður hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag hefur mað-
ur ekki heilsu fyrir tímann á morgun! Þá er bara að taka
ákvörðun um að taka upp nýjan lífsstíl, hreyfa sig heilsunn-
ar vegna en ekki útlitsins vegna og koma sér upp úr sófan-
um. Þið getið verið vissar um að með því að hreyfa ykkur
reglulega og borða skynsamlega þá bætið þið heilsuna, verð-
ið orkumeiri og lífsglaðari. EN þið komið ekki til með að líta
út eins og Cindy Crawford...og hvað með það?
72