Vera - 01.04.2003, Blaðsíða 15
það uppgötvi nýja fleti á málum. Oft þarf bara að umorða hlut-
ina, nefna dæmi og það kveikir í fólki.
Tekur þú þátt í jafnréttisstarfi á öðrum vettvangi?
Ég er félagi í nýstofnuðu Femínistafélagi (slands og þátttakandi á
póstlistanum feministinn.is. Það er bæði skemmtilegt og gagn-
legt þar sem jafnréttismál hafa lengi verið helsta áhugamál mitt.
Góðar hugmyndir verða sjaldan til í einrúmi heldur í samræðum.
Þess vegna virkar þetta sem bakland fyrir okkur sem störfum að
jafnréttismálum og góður vettvangur þar sem varpa má fram
hugmyndum til að fá fleiri sjónarhorn á þær áður en unnið er úr
þeim og jafnvel kveikt nýjar. Málefnaflokkar félagsins og umræð-
an á póstlistanum ætti að sannfæra flesta um að hægt er að finna
HÉR MÁ NEFNA AÐ FLESTIR LEIKSKÓLASTARFSMENN
KANNAST VIÐ AÐ HJÁLPA STRÁKUNUM AÐ KLÆÐA
SIG OG DRÍFA ÞÁ ÚT Á UNDAN STELPUNUM, TIL AÐ
FORÐAST LÆTI í ÞEIM. ÞÁ FÁ STRÁKARNIR ÞJÓNUSTU
OG FORGANG EN LÆRA SÍÐUR AÐ KLÆÐA SIG.
upp sjálfir. Þeir mega ekki vera i bleiku, ekki í kjól, ekki skreyta sig,
ekki með teygju eða spennu í hárinu osfr. Stúlkur fá að vita hvað
má og halda sig á „öruggum svæðum". Það skerðir oft víðsýni
þeirra og reynsluheim.
Við erum öll haldin einhverjum fordómum og um leið og við
gerum okkur grein fyrir þeim getum við unnið með þá og komist
hjá því að mismuna fólki, hvort sem er eftir kyni, kynþætti eða
öðru. Sem dæmi um þetta má nefna að enginn atvinnurekandi
myndi viðurkenna að hann borgaði dökkhærðum körlum og
rauðhærðum konum hærri laun en öðrum, þó vísbendingar um
slíkt hafi komið fram í launakönnun VR fyrir nokkrum árum. Eins
er með launamun kynja. Ég trúi þvi að fæstir atvinnurekendur
mismuni kynjum vísvitandi í launum og reyni að réttlæta hann
með öðrum rökum en kynferði. Það eru samt oftast þættir sem
eru kynbundnir þegar á reynir, þegar launamunur er skoðaður.
Hvernig finnst þér að vinna að jafnréttismálum?
Jafnréttismál eru skemmtilegur málaflokkur. Þau eru þess eðlis
að allflestir hafa skoðanir á jafnrétti og byggja það oft á eigin
teynslu og túlkun sem fólki hættir þó til að alhæfa útfrá. Það vilja
Því allflestir ræða málin en fáir hafa kynnt sér nýjar áherslur og
vinnuaðferðir i málaflokknum og þau verkefni sem unnin hafa
verið undanfarin misseri.
(jafnréttisstarfi er verið að þróa aðferðir, verkefni og meta ár-
angur. Þetta er mikil hugmyndavinna og fræðslustarf sem bygg-
ir á að storka núverandi kerfi og setja spurningamerki við ýmis-
legt sem talið er að sé óumbreytanlegt en reynist ekki vera það
Þegar á reynir. Hin eina rétta uppskrift er ekki til og því hægt að
beita mismunandi aðferðum og oft er niðurstaðan önnur en ætla
mætti í byrjun. Það er mjög góð tilfinning þegar fólki finnst að
kynjavinkla á nánast öllum málum. Samþætting jafnréttissjónar-
miða er að vinna sér sess og verður regla fremur en undantekn-
ing innan skamms, jafnvel þó okkur þyki stundum miða of hægt.
Þetta tvennt, félagið og póstlistinn, hefur líka hleypt nýju blóði í
þjóðfélagsumræðuna og er það vel. Ég er því bjartsýn á framtíð-
ina.
vera / jafnréttisráðgjafinn / 2. tbl. / 2003 /15