Vera - 01.04.2003, Page 35
þörfum sem metnar eru til hækkunar launa, en konur virðast ekki
fá sambærilega meðferð atvinnurekenda. Annað hvort vegna
Þess að þær sækja ekki þennan rétt sinn eða þeim er ekki boðið
UPP á slíkt í sama mæli og körlum. Allt bendir til þess að gagnsæ-
'r kjarasamningar, sem gerðir eru á félagslegum grunni, geti snú-
ið ofan af þessari öfugþróun.
Fjölskyldustefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs
gerir ráð fyrir styttingu vinnuvikunnar, hækkun barnabóta og
okeypis leikskólum. Við teljum aðgerðir á borð við þessar vera til
Þess fallnar að rétta hlut kvenna, bæði hvað varðar efnahagslegt
sjálfstæði og féiagslegt öryggi. Við viljum hefja gildi raunveru-
iegra lifsgæða til vegs og stuðla að hugarfarsbreytingu í þeim
efnum. Stjórnvöld á hverjum tíma geta sannarlega hvatt til slíkra
breytinga og við sjáum fyrir okkur að gerð verði sérstök fram-
kvæmdaáætlun í þessum efnum í upphafi næsta kjörtímabils.
^að er allt of algengt að stjórnmálamenn lofi öllu fögru fyrir
kosningar og komist upp með það, þar sem lítið erfylgst með þvi
hvemig þeir efna öll loforðin. Vg vill að hver ný ríkisstjórn hafi að-
hald frá almenningi og öflugum félagasamtökum. Þess vegna
höfum við flutt tillögur um bætt starfsumhverfi fyrir kvenna-
hreyfinguna og aðra hópa sem vinna að jafnari stöðu kynjanna á
íslandi. Það verði m.a. gert með þvi að stofnaður verði sjóður
með lið á fjárlögum i þeim tilgangi að styrkja hvers konar starf fé-
lagasamtaka, hópa og einstaklinga sem miðað getur að jafnari
stöðu kynjanna. Hluta sjóðsins verði varið til þess að tryggja þátt-
töku sömu hópa i alþjóðlegu starfi. Þá viljum við að formleg
tengsl verði mynduð milli einstakra ráðuneyta og þeirra sam-
taka, hópa og einstaklinga sem innan starfssviðs hvers ráðuneyt-
is vinna að jafnari stöðu kynjanna á hverjum tíma.
Að lokum vil ég nefna hér hugmyndir okkar um að unnið
verði skipulega gegn hvers konar ofbeldi sem konur í samfélag-
'nu verða að þola. Það er okkar bjargfasta trú að staða kvenna í
samfélaginu myndi breytast talsvert takist að útrýma þvi and-
lega og likamlega ofbeldi sem konur eru beittar. ( því sambandi
höfum við lagt til að vændi verði skilgreint sem kynferðisofbeldi
°g leggjum til að refsiábyrgðin verði færð af herðum þeirra sem
stunda vændi yfir á herðar vændiskaupandans. Við erum einnig
að undirbúa frumvarp til laga sem heimilar lögreglu að fjarlægja
ofbeldismann af heimili, í stað þess að vísa fórnarlömbum of-
beldisins út af eigin heimilum og færa í kvennaathvarf. Þetta telj-
urn við að myndi geta breytt viðhorfum samfélagsins til heimilis-
ofbeldis.
Fyrir utan það sem hér hefur verið upp talið, má nefna skyldu
°kkar (slendinga til að halda augunum opnum gagnvart því mis-
retti sem konur um allan heim eru beittar. Vg vill efla umræðu
um áhrif stríðs og fátæktar á líf kvenna og barna í heiminum, auk
Þess sem við teljum að auka þurfi þróunaraðstoð íslenska ríkis-
lns- í því sambandi verður að huga að því hvernig aðstoðin nýtist
konum sérstaklega. Allar aðgerðir stjórnvalda verður að skoða
kynjasjónarmið í huga, aðeins þannig getum við vænst ár-
angurs.
Margrét Sverrisdóttir, Frjálslynda flokknum
Leiðrétta launamun kynjanna
hrýnast er að vinna gegn öllu því sem viðheldur kynbundnu
launamisrétti. Launamunur kynjanna liggur meðal annars í alls
kyns yfirborgunum og því er mikilvægt að launasamningar séu
gagnsæirog launþegarvel upplýstirum launagreiðslurfyrirsam-
bærileg störf. ( einkageiranum hafa einkasamningar tíðkast í
miklu ríkara mæli en hjá hinu opinbera og það þarf að sporna við
því. Hugsanlega mætti gera fyrirtækjum skylt að upplýsa um
laun og kyngreina þær upplýsingar.
Kynbundinn launamunur fer að vísu minnkandi en það er
ennþá mjög langt í land að hann verði leiðréttur og ég geri mér
ekki vonir um að það takist á einu kjörtímabili nú fremur en hing-
að til, en það er mjög mikilvægt að vera vel á verði.
2. Samþætta jafnrétti öllum sviðum samfélagsins
Æskilegt er að samþætta jafnrétti inn í menntun, atvinnustefnu
osfrv.
Það er mikilvægt að horfa með „kynjagleraugum" á allar
ákvarðanir stjórnvalda.
Hingað til hafa stjórnvöld sjaldnast velt því fyrir sér hvaða
áhrif ákvarðanir þeirra um hvernig verja skuli skattfé borgaranna
hafi á jafnrétti. Nýjasta dæmið um slíka „kynblindu" hérlendis er
sex milljarða fjárveitingin til vegaframkvæmda. Þeirri upphæð er
varið til atvinnuskapandi verkefna sem næstum eingöngu skapa
karlastörf og þau kvennastörf sem skapast eru afleidd störf í
þjónustugeiranum.
Samþætta þarf fjárlagagerð og jafnrétti, það hefur verið
nefnt kynjuð hagstjórn og verður eflaust öflugt hjálpartæki í bar-
áttunni fyrir auknu jafnrétti kynjanna.
3. Vinna gegn klámvæðingu, vændi og ofbeldi
Að mínum dómi er klám mælikvarði á siðferði þjóðar. íslending-
ar eiga að hafna þvi að klámefni og vændi verði aðgengilegt. Bar-
áttan gegn vændi og ofbeldi þarf að beinast í meira mæli að karl-
mönnum sem gerendum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Samfylkingu
Töluvert hefur áunnist í réttindamálum kvenna á undanförnum
áratugum og á flestum sviðum hefur staða þeirra til jafns við
karla verið tryggð í íslenskri löggjöf. En orðum þurfa að fylgja at-
hafnir og ég tel að brýnasta verkefnið á næsta kjörtímabili sé að
láta verkin tala. Ofbeldi gegn konum er enn of algengt, launa-
munur kynjanna er enn of mikill, fátækt kvenna er enn meiri en
karla, og tækifæri kvenna til starfsframa eru enn færri en karla.
Þeir sem ráða för í ríkisstjórninni og kalla sjálfa sig athafnastjórn-
málamenn, hafa ekki sýnt því sérstakan áhuga, hvorki í orði né á
borði, að beita þeim tækjum sem ríkisvaldið ræður yfir til að
breyta þessari stöðu. 7-10% fslendinga lifa undir fátæktarmörk-
um og í þeim hópi eru konur tvöfalt fleiri en karlar. Þetta eru m.a
einstæðar mæður og eldri konur sem hafa takmarkaðan lífeyris-
rétt. Enginn veit hver launamunur kynjanna er hjá ríkinu því þar
hafa menn aldrei haft svo lítið við að kanna hann. Sparnaður og
óstjórn í heilbrigðiskerfinu kemur niður á konum sem eru í meiri-
hluta þeirra sem starfa á stofnunum þess.
Og svo þessi sláandi staðreynd að einungis 18,7% forstöðu-
manna ríkisstofnana og ráðuneyta eru konur. Mér er spurn,
hvernig hafa þeir farið að því að viðhalda þessari stöðu? Hvernig
hafa þeir farið að því að sniðganga konur með þessum hætti? Við
vitum að konur hafa á undanförnum árum verið fjölmennari en
karlar ( háskólanámi, þær hafa unnvörpum útskrifast úr lang-
skólanámi með láði og hafa margvíslega reynslu sem nýtist í ^
vera / alþingiskosningar / 2. tbl. / 2003 / 35