Vera - 01.04.2003, Page 44
Lautarferð í Öskjuhlíð
Sumarið er að koma og grillfiðringurinn farinn að láta á sér kræla.
Guðbjörg Gissurardóttir, höfundur bókarinnar, Hristist fyrir notkun, endur-
tekur hér fyrir lesendur VERU lautarferð sem hún fór í með saumaklúbbinn
síðasta sumar.
»Ég var alsæl með þá hugmynd mína að fara með stelpurnar upp í Öskjuhlíð en þegar kom að því að ákveða
hvað ég ætti að bjóða þeim uppá lágu hugmyndirnar ekki á lausu. Klukkan hálf sjö stóð ég ráðþrota fyrir
framan eldhússkápana mína sem voru því miður álíka tómir og hausinn á mér. En mér til happs fann ég í ein-
um skápnum hálfan poka af sykurpúðum og skyndilega rigndi hugmyndunum yfir mig og ég fylltist ótrúleg-
um spenningi og framkvæmdaorku. Ég dró fram einnota grill sem ég hafði átt í nokkur ár og úr því litla sem
til var í eldhúsinu tókst mér að útbúa fyllta sveppi, tortillakökur með osti, marinerað eggaldin, grillaðan hvít-
lauk og að sjálfsögðu voru sykurpúðarnir með. Þetta var skemmtilegasti undirbúningur fyrir saumaklúbb sem
ég hef upplifað og mun stemningin við grillið í Öskjuhlíðinni seint líða okkur stelpunum úr minni.
Grillaðar tortillakökur með osti
Ég raða ostsneiðum á tortillakökur og legg aðra ofaná svo úr verður nokkurskonar samloka
(Quesadilla). Síðan sker ég kökurnar f þríhyrninga og grilla á báðum hliðum þar til osturinn
bráðnar. Salsa sósa sett ofaná. Þetta er eitt af uppáhöldum 4 ára dóttur minnar.
44 / matur / 2. tbl. / 2003 / vera