Vera - 01.04.2003, Síða 49
/KONUR í FERÐAÞJÓNUSTU
Hvalaskoðarinn Moby Dick
Helga Ingimundardóttir er fædd og uppalin í Innri Njarðvík
°9 átti sér þann draum að koma Reykjanesskaganum á
kortið hjá ferðamönnum. Eftir að hafa starfað sem
leiðsögumaður á svæðinu um skeið sá hún að þar væru ekki
nægilegir vaxtamöguleikar, því yrði að koma á fót einhverju
sem laðaði að ferðamenn. Árið 1994 ákvað hún að hefja
hvalaskoðunarferðir og stofnaði fyrirtækið Höfrunga- og
hvalaskoðun. Hún var í nokkur ár í samstarfi við smábáta-
eiganda sem gat tekið tólf farþega, því næst leigði hún 30
farþega bát og árið eftir bát sem tók 50 farþega. Það var svo
haustið 2000 að Helga ákvað að kaupa skipið Moby Dick sem
tekur 90 farþega og hefur reynst mikið happafley, sigldi t.d.
nieð 8000 farþega eitt sumarið. f sumar verður víkingaskipið
fslendingur staðsett í Keflavík og fá farþegar að skoða það
með sérstakri leiðsögn.
Félag kvenna í atvinnurekstri veitti Helgu nýlega hvatningar-
verðlaun fyrir atorku og kjark í rekstri sínum. Hún segir að það
hafi glatt sig mjög því það sé vissulega mikið álag að standa í
svona rekstri. „Þó að vel gangi hjá okkur þá segir það sig sjálft að
Það er þungt að reka fyrirtæki sem gengur ekki nema hálft árið,
eins og flest fyrirtæki í ferðaþjónustu á (slandi gera," segir Helga
en hún býður upp á fastar áætiunarferðir daglega mánuðina
apríl til október.
En hvernig stóð á þvi að Helga sneri sér að ferðaþjónustu-
rekstri?
»Ég hika ekki við að segja að ég hafi smitast af ferðaþjónustu-
bakteríunni þegar ég vann á Sikiley eitt sumar. Ég var reyndar að
þrífa hótelherbergi fyrir gesti sem komu á vegum
ferðaskrifstofunnar Útsýn en heillaðist bara af atvinnugreininni
°9 ákvað að snúa mér að henni. Ég er með próf úr Verzlunar-
skólanum og hafði unnið á bæjarskrifstofunum í Njarðvik í sextán
ár en fannst tími til kominn að breyta til. Ég byrjaði á að taka
(eiðsögumannspróf fyrir Reykjanessvæðið 1985 og var svæðis-
leiðsögumaður hjá Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur (tvö sumur. Svo
Wk ég meirapróf til að geta keyrt rúturnar og fór í Ferða-
málaskólann fyrsta veturinn sem hann starfaði. Að því loknu fékk
ég vinnu á Ferðaskrifstofu varnarliðsins og gerðist síðan
forstöðukona Fræðasetursins í Sandgerði í tvö ár. Það má því segja
að ég hafi kynnst ýmsum hliðum ferðaþjónustu á Suðurnesjum
áður en ég snéri mér að hvalaskoðuninni," segir Helga.
Hvalaskoðunarskipið
Moby Dick var áður
Djúpbáturinn Fagranes
sem árum saman sigldi
með farþega og bíla um
ísafjarðardjúp.
Alltafnóg af hvölum
Þegar Helga fékk hugmyndina að hvalaskoðuninni byrjaði hún á
því að hafa samband við Hafrannsóknastofnun og spurðist fyrir
um hvali á svæðinu. Þar var henni sagt að út af Reykjanesinu væri
mikið hvalalíf. „Ég hef alla tíð haft mikið samstarf við
vísindamenn Hafrannsóknastofnunar. ( gegnum þá komst ég í
kynni við danska konu sem er sjávarlíffræðingur og var
leiðsögumaður hjá okkur í mörg ár. Hún hefur verið að rannsaka
hegðun höfrunga og eftir að hún sneri sér að því að skrifa
doktorsritgerðina útvegaði hún okkur aðra sjávarlíffræðinga sem
taka því fegins hendi að fá að vinna á hvalaskoðunarskipi."
Helga keypti Moby Dick í félagi við tvo samstarfsmenn sina,
vélstjórann og mann sem ekur rútu í tengslum við ferðirnar. „Hér
á Suðurnesjum er mikið um vaktavinnumenn, það er mjög
þægilegt að hafa slíka menn í vinnu, þeir þurfa þá ekki að treysta
eingöngu á hana," segir hún um þessa góðu samstarfsmenn sína
og bætir við að sjálf hafi hún unnið aðra vinnu með fyrstu sex árin.
„Hver áætlunarferð á Moby Dick tekur þrjá tíma en við
bjóðum lika fjögurra tíma sjóstangaveiðiferðir og alls kyns
sérsniðnar ferðir fyrir hópa - afmælisveislur og önnur mannamót.
( rútunni frá Reykjavik fá ferðamenn leiðsögn um svæðið á
geisladiskum og við bjóðum einnig ferðir í Bláa lónið að lokinni
siglingu. 190 - 97% tilvika sjáum við hvali, algengastir eru hnísur,
höfrungar og hrefnur og á sumrin er oft mikið af hnúfubak. Ef
engir hvalir sjást bjóðum við fólki aðra ferð ókeypis.
Langstærstur hluti farþega okkar eru útlendingar en það er
gaman að hafa (slendinga í ferðunum. Þeir hafa oft ekki mikia trú
á þessu í fyrstu en verða yfir sig glaðir þegar dýrin fara að sjást og
margir ráða sér ekki fyrir kæti," segir Helga að lokum.
Nánará: www.dolphin.is
vera / konur í ferðaþjónustu / 2. tbl. / 2003 / 49