Vera - 01.04.2003, Síða 50
/KONUR ( FERÐAÞJÓNUSTU
íslandsflakkarar
»íslandsflakkarar, eða „lceland Rovers", er fyrirtæki í ferðaþjónustu sem sérhæfir sig í að aka
með útlendinga um hálendi íslands og leiðsegja þeim. Ekið er á breyttum Land Rover jeppum
sem 38" dekk hafa verið sett undir og gerir þá hæfari til að aka um hálendið, yfir ár og vegleys-
ur. íslandsflakkarar sérhæfa sig í afþreyingu, eins og hellaferðum, leikjaprógrömmum og þjóð-
legum uppákomum. Sérstök áhersla er lögð á allt sem íslenskt er. Bílstjórar eru sérstaklega
hvattir til að klæðast íslensku lopapeysunni í ferðum. Ferðamennirnir fá að kynnast ýmsum
þjóðlegum siðum, dansa þjóðdansa, syngja íslensk lög, borða útilegumannakjötsúpu, leita að
gullinu hans Egils á hingvöllum, taka víkingapróf sem felst í því að standa úti í köldu vatni,
borða hákarl og drekka íslenskt brennivín. Að Islandsflökkurum standa níu hluthafar, fjórar
konur og fimm karlar. Það vekur athygli hversu hátt hlutfall kvenbílstjóra er hjá fyrirtækinu og
verður hér rætt við tvær þeirra. Hluthafar íslandsflakkara standa einnig að fyrirtækinu íslenskir
fjallaleiðsögumenn sem sérhæfa sig í að leiðsegja útlendum og íslenskum gönguhópum um
hálendið í lengri ferðum og meðal annars er gengið á jökla.
Laufey hálendisbílstjóri
Hulda Gestsdóttir
Laufey Magnúsdóttir er hluthafi í (slandsflökkurum og starf-
andi bílstjóri hjá fyrirtækinu. Árið 1996 var borin upp sú hug-
mynd við hana og manninn hennar að festa kaup á Land Rover
jeppa, breyta honum í súperjeppa og selja ferðamönnum ferð-
ir inn á hálendið. I fyrstu leist þeim ekki á þetta en skoðuðu
málið betur, slógu til og eru ánægð með ákvörðunina.
„Maðurinn minn, Snorri Gíslason, rekur bílaverkstæðið S.S Gísla-
son á Smiðshöfða 11 og hefur meðal annars verið í því að hækka
upp jeppa og breyta þeim. Það var ástæðan fyrir því að okkur var
boðið að vera með í Islandsflökkurum. Við höfðum ferðast mikið
innanlands, ég vil frekar ferðast innanlands en fara til útlanda,
það er engin spurning," segir Laufey.
Laufey er borin og barnfæddur Vestmannaeyingur og flutti
upp á land í gosinu 1973. Þá var hún átta ára og hafði aldrei ferð-
ast lengra en út í Elliðaey. „Það var mikið ævintýri fyrir mig að
koma til Reykjavíkur og upp á land. Við bjuggum um tíma á Geld-
ingalæk í Rangárvallarsýslu. Þaðan voru hæg heimatökin, fjalla-
50 / konur í ferðaþjónustu / 2. tbl. / 2003 / vera