Vera - 01.04.2003, Page 71
/BRÍET - FÉLAG UNGRA FEMÍNISTA
Bríet mælir með:
© Almennum mótmælum og andófi síðustu vikna
Við héldum að tími kröfuspjaldanna væri liðinn en það er sko al-
deilis ekki. Sérstaklega vorum við hrifnar af mótmælunum „Karl-
ar á móti launamisrétti" 8. mars.
© Píkusögum
sem Leikfélag Reykjavíkur er byrjað að endursýna.
© Stúdentapólitíkinni
fytir það að hafa konur í meirihluta ( efstu sætum framboðslista
sinna nú í ár. Konur leiddu alla listana, hjá Röskvu, Vöku og Há-
lista.
© Stéttarfélögum hjúkrunarfræðinga og flugþjóna
fyrir að standa upp og benda á að kynlífs- og klámvæðingin hef-
ur áhrif á ímynd starfstétta þeirra. Afleiðing þessa má meðal ann-
ars sjá í því að kvenkynsflugþjónar og hjúkrunarkonur lenda oft-
ar I kynferðislegri áreitni en aðrar stéttir þar sem konur eru í
meirihluta. Nuddarar hafa einnig barist fyrir því að hætt verði að
auglýsa erótískt nudd en það hefur augljóslega áhrif á ímynd
nuddara sem slíkra.
© Tímaritinu Whomen Who Rock
eða www.womenwhorockmag.com. Þetta tímarit vekur athygli á
9ömlum goðsögum og nýjum gellum í tónlistinni. Mjög
femínískt meðvitað f þokkabót. Gítar- og græjuauglýsingarnar
eru líka bara með konum í en það sést aldrei í öðrum blöðum
nema þá ef gellan er í bikiní. Ef innihald svona blaðs væri normið
1 öðrum tónlistartímaritum hefðum við kannski séð fleiri stelpur
taka þátt í Músíktilraunum. Hver veit!
Bríet mælirá móti:
© Stríði í frak
© Ríkinu
a) Fyrir að auka ríkisútgjöld til framkvæmda sem skapa einungis
ný störf í þeim geira atvinnulífsins sem ráðandi er af körlum.
b) Fyrir að láta launamisrétti kynjanna viðgangast. Sem stærsti
atvinnurekandi á landinu ætti ríkið að geta sýnt fordæmi í þess-
Urn málum og fylgt þeim lögum sem það hefur sjálft samþykkt
urn jafnan rétt karla og kvenna.
© Scooter
sem spilaði f Laugardalshöllinni 11. apríl sl. I auglýsingunni fyrir
tónleikana var tekið fram að Scooter byði upp á stórsýningu með
'éttklæddum dömum innanborðs. Auk þess eru berbrjósta Ijós-
hserðar gellur dansandi í baði í myndbandinu hjá honum. Fárán-
le9t, ég veit! En þessi bútur gæti rétt eins verið f blárri bíómynd.
Scooter er greinilega bara graður gamall karl.
© Auglýsingaherferð Bylgjunnar
Hvað er málið með að hafa bara karla á auglýsingaspjaldinu
asamt texta um fróðleik og traust? Eru engar konur sem vinna á
stöðinni sem þóttu bera merki fróðleiks og trausts?
© Þeim sem bjuggu til stelpnadúettinn Tatu
Þeir hafa nú viðurkennt að fyrirmynd dúettsins sé hreinlega
barnaklám. Þeir sáu hvað barnaklám getur verið vinsælt og
ákváðu að gera sér féþúfu að því að markaðssetja tvær syngjandi
stelpur í sleik.
Eina sólarvörnin sem er
skráð læknisfræðileg.
Gefur faliegan,
endingargóðan
sólbrúnan lit.
U V A (★★★★) M A X
P R 0 D E R M
siinscrcch ior m»
UP TO 6 HOURS
PROTECTION
MOUSSE
• WATER & TOWR*!
'WAl FOR sensitive skins
Fæst í apótekum og fríhöfninni
vera / bríet / 2. tbl. / 2003 / 71