Freyr - 15.04.1966, Síða 7
FREYR
185
SigurSur Benediktsson framkvœmdastjóri
gegnum matið. Nú vinna öll mjólkurbúin
að því að framleiða sem bezta og jafnasta
vöru.
— Pakkið þið öllu smjöri hér, sem selt er
í Reykjavík oq nágrenni?
— O.S.S. pakkar smjörið fyrir flest minni
mjólkurbúin, en þau stærri pakka sjálf sitt
smjör. Óvíst er hvort hér við O.S.S. verði
lögð meiri áherzla á að pakka öllu smjöri
og byggja þá myndarlega viðbót við húsið,
eða fara inn á þá braut að mjólkurbúin sjálf
annist pökkun á smjörinu. En eins og er þá
er smjörpökkunin háð leyfi Osta- og Smjör-
sölunnar, er það hliðstætt og gerist í öllum
löndum þar sem sala mjólkurafurða er í
höndum samvinnuverzlunar.
— Geta öll mjólkuröúin fengið slíkt
leyfi?
— Leyfið er ekki veitt mjólkursamlögum
nema gegn ákveðnum skilyrðum, sem búin
verða að uppfylla. Sérstaklega gilda þessar
reglur varðandi matið, sem hefir verið tekið
upp á smjörinu.
— Hvernig er þetta mat framkvæmt?
— Mjólkursamlögin senda hingað 5 kg
sýnishorn úr hverjum einasta strokki. Þetta
smjör er dæmt, þegar við fáum sýnishornið.
Síðan er það geymt við stofuhita 15-17° C
í 3 vikur, þá er það dæmt á ný, ef smjörið er
jafn gott eftir þennan tíma hefur það staðist
okkar gæðamat. Smjörið er aldrei sett á
markaðinn fyrr en þetta mat hefur farið
fram.
— Er það alltaf elzta smjörið, sem þið
seljið?
— Já, að mestu er það. En smjör, sem hef-
ur verið geymt í nokkra mánuði, er metið
áður en það er pakkað og sett á markaðinn.
En nú eru smjörgeymzlur það góðar, rneð
20-24 stiga frosti, að auðvelt ætti að vera
að geyma smjör, jafnvel svo árum skiptir.
Ég get sagt þér það, að í fyrra var selt í
Bretlandi 3ja ára kanadískt smjör, var það
ágætis vara.
— Hvað er stór hluti smjörsölunnar á
vegum O.S.S.?
Sigfús Gunnarsson skrifstofustjóri, hann hefur starfað
við fyrirtœkið frá stofnun þess,