Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 26
204
FREYR
PÉTUR SIGURÐSSON:
Nýfing undanrennu í íslenzkum
Almennt um vandamáliS
Vegna mikilla árstíðabreytinga í mjólkur-
framleiðslu eiga mjólkurbú í flestum lönd-
um í meiri og minni erfiðleikum með miðlun
mj ólkurmagnsins.
í Noregi t. d. hefur þessum vanda verið
mætt með því að borga framleiðendum
meira fyrir vetrarmjólkina en sumarmjólk.
Mismunurinn er um 10% af útborgunar-
verðinu. Þessi verðmunur hefur samt sem
áður ekki gert annað hingað til en að stöðva
þessa þróun til stöðugt stærri árstíðabreyt-
ingar í framleiðslunni.
Vegna þessarar ójöfnu mjólkurfram-
leiðslu hafa mjólkurbúin meiri mjólk á
sumrin en þörf er á til sölu, til ostagerðar
miðað við geymslurými, og svo til hæfilegr-
ar heimsendingar undanrennu.
Afgangurinn verður að fara til smjörgerð-
ar. Mjólkurbúin fá þannig á sumrin mikið
magn af undanrennu, sem þau verða að
losna við á einhvern hátt. Endursending til
framleiðenda er það einfaldasta. Það er bara
oft erfitt fyrir bændur að nota þetta mikla
magn undanrennu, sérstaklega vegna þess,
að það er aðeins í nokkra mánuði á sumrinu,
sem magnið er mjög mikið. Það er þess-
vegna mikilvægt að geta losnað við undan-
rennuna á annan hátt.
Það, sem manni dettur fyrst í hug, er
framleiðsla á kaseini og undanrennumjöli.
Þessir möguleikar eru alveg háðir fram-
leiðslukosnaði, sölumöguleikum og verði á
heimsmarkaðinum.
Það er augljóst, að þessar árstíðabreyting-
ar í mjólkurframleiðslunni kosta mjólkur-
búin miklar fjárhæðir. Þau hafa standandi
dýr framleiðslutæki, sem þau geta ekki not-
að nema til hálfs um vetrarmánuðina.
Það, sem ég á við með undanrennuafgang
hér á íslandi, er sú undanrenna, sem er not-
uð í iðnaðarvörur til sölu erlendis, með há-
um niðurgreiðslum frá ríkinu og svo það
magn, sem fer í sjóinn.
Árið 1963 var undanrennuafgangurinn
25,5 milljónir lítra.
Til hvers getum við svo notað þessa
undanrennu?
A. Undanrenna til fóSurs
Það hefur verið reiknað með, að 6 lítrar und-
anrennu jafngildi einni fóðureiningu.
Vegna hins háa efnalega gildis undanrenn-
unnar fékk hún, í eldri útreikningum, svolít-
ið betri útkomu en hún í raun og veru á skil-
ið. Með hliðsjón af innihaldi undanrennunn-
ar, af meltanlegum næringarefnum, reikna
fóðurfræðingar nú með 8 lítrum í hverja
fóðureiningu.
Árið 1963 var endursent til bænda aðeins
3,0 milljónir lítra af undanrennu, eða 3,2%
af innveginni mjólk. Ef allur undanrennu-
afgangurinn hefði verið endursendur mundi
magnið hafa orðið 28,7%. Til samanburðar
get ég nefnt, að sum mjólkurbú í Noregi
endursenda allt að 80% af innvigtaðri
mjólk. Meðaltalið er þar um 20%.
Ég tel aðal ástæðuna fyrir hinni litlu
notkun undanrennu til fóðurs hér vera, að
bændur hafa ekki fengið nægar leiðbeining-
ar um hvernig hægt er að nota hana. Um
notkun hennar til fóðurs má segja:
Pétur Sigurðsson stundaði nám í mjólkurfrœðum
við Landbúnaðarháskólann á Asi í Noregi.
Grein sú er hér birtist er úrdráttur úr prófverkefni höfundar,
sem hann skilaði við lokaprófið á skólanum.