Freyr - 15.04.1966, Blaðsíða 60
238
FREYR
M°L AR
Produsenten
heitir málgagn sambandsfélaga norska landbúnað-
arins. í þriðja hefti þessa árs var á forsíðu mynd af
„dýrasta mink í heimi" þar sem verið var að taka
úr flugvél sendingu af „Jet Black“ en sú minka-
tegund er nú í mestri tízku og aðeins 5 ára gam-
alt afbrigði, því það er háttur þeirrar tízku að
skipta stöðugt, eins og gerist með tízkuna. Noregur
fékk sinn hlut sendingarinnar, sem annars átti að
skipta milli minkræktarmanna á Norðurlöndum, en
það voru 90 karldýr, er kostuðu 4 milljónir norskra
króna eða 24 milljónir íslenzkar. Auðvelt er þá að
reikna, að hvert dýr hefur kostað 267000 krónur.
011 á sendingin að verða í sóttkví þangað til í
september og síðan vona menn að vel gangi að
framleiða „Standard Black“ afbrigðið með umrædda
Jet Black sem ættfeður.
4. Rétt er að skola með köldu vatni á eft-
ir þvotti. Tæmið kerfið.
5. Dauðhreinsið með köldu vatni, sem
inniheldur 1 desilíter (samsvarar ein-
um kaffibolla) af 30% saltpétursýru
(HN03). Þessi upplausn þarf að renna
í 5 mín. um kerfið. Tæmið kerfið.
6. Tæmið kerfið vandlega og notið minnst
4 hreinsitappa.
Ef mjólkurrör eru úr ryðfríu stáli eða
úr gleri (sbr. Gascoignekerfið) þá er eftir-
farandi hreinsiaðferð notuð.
1. Fjarlægið mjólkurdreggjar.
2. Sjóðandi vatn (eða minnst 90°) er sog-
að inn í kerfið. Eftir að byrjað er að
soga vatnið, er saltpétursýru blandað í
vatnið. Blandan á að renna um kerfið
í minnst 5 mín. Styrkleiki blöndunnar
er 2 dl. of 30% sýru í 10 1 af vatni.
3. Skolun með sjóðandi vatni.
<----------<-------------<-----------------
95°-100° vatn Saltpétursýra 95°-100° vatn
+ heitt vatn
Tilbúinn áburður
er um allan heim notaður í vaxandi mæli. Á árinu
1964-65 var notkun hans 11,5% meiri en næsta ár
á undan. I vissum hlutum heims er aukning notkun-
ar meiri en annarsstaðar, en mjög er misjafnt hve
mikið er notað í einstökum löndum og á takmörkuð-
um svæðum. íslenzkir bændur geta skoðað hver hjá
sér hve langt þeir eru frá meðalnotkun áburðar á
ha þegar þeir fá vitneskju um, að í Evrópu er að
meðaltali notað 110 kg tilbúins áburðar á ha, í
Norður- og Mið-Ameríku aðeins um 45 kg á ha, í
Ástralíu og Nýja-Sjálandi 39 kg á ha, Sovétríkjun-
um 22 kg á ha, Suður-Ameríku og Asíu (að Kína
undanskildu) 11 kg á ha og í Afríku aðeins 4 kg
á ha. Er þá að sjálfsögðu allsstaðar miðað við nytjað
land.
Fyrsti dýralæknaskóli heimsins
var stofnaður árið 1760 í Lyon í Frakklandi. Sá hét
Claude Bourgelat, sem stóð fyrir því, en dýralækna-
nóm var þar áður stundað sem grein af venjulegu
læknanámi. Þrettán árum síðar var fyrsti dýra-
læknaskóli á Norðurlöndum stofnsettur. Hét sá
P. C. Abildgárd, sem stóð fyrir því, en hann hafði
numið dýralækningar hjá Bourgelat um 2% árs
skeið, en áður hafði Abildgárd stundað lyfjafræði
og læknisfræði í heimalandi. Nautpeningspest, sem
herjaði um gjörvalla Evrópu um þetta leyti, gaf
tilefni til að skólin var stofnaður, og fáum árum
síðar vann Abildgárd sér alheimsálit við að stöðva
framgang pestarinnar. Upp úr því streymdu dýra-
læknanemar til skóla hans frá mörgum löndum og
öllum álfum. Skólinn var sjálfstæð stofnun á Krist-
jánshöfn unz Búnaðarháskólinn var stofnsettur
1856, en síðan hefur dýralæknadeildin alltaf verið
stærsta deild hans.
Sýrur til votheysverkunar
eru stöðugt og í vaxandi mæli notaðar um Norður-
lönd. Til skamms tíma var A. I. V.-sýran notuð af
flestum en nú lækkar vegur hennar ört, maura-
sýra og sölt af henni leysa hina fyrmefndu af hólmi.
Þetta er ekki af því að maurasýra sé betra rotvarn-
arefni, heldur af því, að hún er hættulítil, bæði í
meðferð og í notkun handa búfénu, en A. I. V.-sýr-
an var hættuleg ef ekki var höfð gát á öllum hlut-
um. Hér á landi náði A. I. V.-sýra aldrei útbreiðslu
en maurasýra og sölt hennar eru notuð í vaxandi
mæli, enda borgar það sig ævinlega, öryggi um
betri verkun er svo mikið við sýrunotkun. Maura-
sýra fæst nú í plastdunkum, það eru góðar umbúðir.
En munið, bændur, að nauðsynlegt er að sýruverja
votheysturnana.