Freyr - 15.09.1978, Blaðsíða 13
Að vanda
sátu margir
gestir fundinn.
gildandi ákvæði um stjórnarkjör væru
þvingandi og þyrftu athugunar við. Hann
sagði, að landbúnaðarmálin hefðu um skeið
verið pólitískt bitbein, en svo mætti ekki
vera. Þórður þakkaði síðan formanni Stétt-
arsambandsins sérstaklega óbilandi þraut-
seigju og dugnað í forystuhlutverki bænda-
stéttarinnar við erfið skilyrði.
Engilbert Ingvarsson ræddi um rekstrar-
lánin og lagði til, að þau væru greidd beint
til bænda og athugað yrði einnig að greiða
bændum útflutningsuppbætur milliliðalaust.
Hann tók til meðferðar einstök atriði úr
skýrslu formanns og lýsti meðal annars á-
nægju með dóm þann, er féll í máli Alþýðu-
sambandsins gegn Framleiðsluráði og sex-
mannanefnd.
Engilbert lýsti andstöðu sinni við að
leggja á kjarnfóðurgjald, en taldi skylt að
hlíta meirihlutasamþykkt Státtarsambands-
fundar.
Þá var klukkan 16 og gefið kaffihlé í
hálftíma. Síðan hófst fundur á ný.
Helgi Jónasson ræddi tillögur sjömanna-
nefndar. Taldi hann að leggja bæri áherslu
á samstöðu bænda um þær aðgerðir, sem
fyrirhugaðar væru, og áleit því að hverfa
ætti frá kjarnfóðurgjaldi, sem sýnilega væri
ekki samstaða um. Hann spurði, hvers
vegna minnstu búunum væri ekki sleppt við
kvótagjald í tillögum sjömannanefndar.
Guðmundur Ingi Kristjánsson þakkaði
sjömannanefnd vel unnar tillögur. Hann
taldi eðlilegt, að tekið væri gjald af ódýru,
innfluttu kjarnfóðri og varið ti! kjarajöfnunar
meðal bændda eða uppbóta á útfluttar vör-
ur, sem lágt verð fengist fyrir. Hann taldi
víst, að greiðsla rekstrarlána beint til
bænda mundi hafa í för með sér ýmsa
erfiðleika og vandkvæði í framkvæmd.
Sigurður J. Líndal fjallaði um framleiðslu-
mál og markaðsaðstöðu. Sagði hann, að
ekki ætti að blanda saman aðalframleiðslu-
greinunum, mjólkurframleiðslu og sauðfjár-
búskap, við útreikninga á verðlagi eða álög-
um. Hann lýsti ánægju sinni með tiilögur
sjömannanefndar.
Páll Pálsson ræddi um skattalög og lýsti
tillögum úr sínu byggðarlagi um það mál,
þar sem bent var á ýmis atriði, sem væru
bændum og félagasamtökum sveitafólks í
óhag. Lagði hann til, að fundurinn gerði til-
lögu um það efni.
Stefán A. Jónsson minnti á nauðsyn á
hömlun gegn búvöruaukningu og hvatti til
aðgerða í samræmi við samþykktir Stéttar-
sambandsins ti! að lækka eða a.m.k. koma í
veg fyrir hækkun verðjöfnunargjalds. Þá
ræddi hann markaðsmálin og taldi, að ýmis-
legt mætti gera til að örva sölu innanlands.
Hann beindi því til Framleiðsluráðs að taka
upp neytendapökkun á slátri til aukinnar
F R E Y R
623