Freyr - 15.09.1978, Blaðsíða 39
meðaltali, miðað við skuldafjárhæð í árslok,
9,3%, en ekki eru Bjargráðasjóðslán að-
greind frá öðrum skuidum í úrtaki Hagstofu
íslands. Þessir vextir eru lægri hundraðs-
hluti en vextir hjá Stofnlánadeild landbún-
aðarins voru sl. ár. En um 40% skuldanna
eru lausaskuidir, sem báru á síðasta ári 16
—17% vexti.
Auk skuidavaxta við áramót hefði mátt
vænta þess, að fram kæmu vextir af rekstr-
aríé, sem búið væri að greiða upp í árs-
lokin. Ég fjölyrði um þennan þátt úrtakanna
sérstaklega vegna þess, að hann snertir
mikio þá baráttu, sem fulltrúar framleiðenda
í sexmannanefnd hafa staðið í um fjár-
magnskostnað í verðlaginu. Það er augljóst,
að bændur af einhverjum óljósum ástæðum
telja ekki fram öll vaxtagjöld sín, og það
veikir aðstöðu Stéttarsambandsins í bar-
áttunni fyrir því að fá leiðréttingar á fjár-
magnsliðnum.
Ég ætla ekki hér að ræða úrtökin frekar.
Sexmannanefndin lagði mat á framkomn-
ar upplýsingar og ákvað að styðjast við
framreikning Hagstofunnar varðandi all-
flesta rekstrarvöruliðina. Þó voru kjarnfóð-
ur- og áburðarliðirnir reiknaðir á sama hátt
og undangengin ár, að tekin var meðalsala
fimm síðustu ára af þessum vörum og deilt
í með meðalbúfjárfjölda landsmanna síð-
ustu fimm ár, að frádregnum svínum,
hænsnum og hrossum, og síðan fundið,
hvað 440 ærgilda bú notaði miðað við með-
alnotkun á ærgildi í öllu landinu. Þetta
hækkaði magn þessara liða örlítið frá gild-
andi grundvelli.
Þá hefur orðið samkomulag í nefndinni
um að hækka fyrningarstofn útihúsa úr
2.505 þúsund í gildandi grundvelli í 3,5
milljónir króna. Það er um 40% hækkun
eða líkt og hækkun byggingarvísitölu milli
áranna, og er þessi tala lík því sem orðið
hefði, ef tekin hefði verið til greina í fyrra
tillaga framleiðenda varðandi þennan lið og
hann hækkaður um 34% eins og fasteigna-
matið hækkaði við síðustu áramót.
Þá hefur einnig orðið samkomulag um
að hækka afskriftastofn véla úr kr. 1.777,600
í gildandi grundvelli í 3 milljónir króna, sem
er 69% hækkun. í tillögum framleiðenda í
fyrra var lagt til, að þessi liður yrði kr.
2.513.000.
Þá hefur orðið samkomulag um breytingu
á útreikningi launagrunns dagvinnu við bú-
reksturinn þannig, að öll dagvinna er reikn-
uð í vikum á karlmannskaupi. Dagvinnuvik-
ur verða 81 og kaupið miðað við 55/100
við ionaðarmannataxta, en að 45/100 við
3., 4. og 5. taxta Dagsbrúnarverkamanna.
Þar með eru laun húsfreyju orðin þau sömu
og bóndans. Eftir- og næturvinna verður
reiknuð með sama álagi á dagvinnukaup
eins og gildir á almennum vinnumarkaði
hverju sinni. Þessi breyting felur í sér leið-
réttingu á gildandi launagrunni um 403.130
krónur eða 8,3%.
Samkomulag hefur orðið um ákvörðun
skulda á vísitölubúinu. Skv. upplýsingum frá
Stofnlánadeild landbúnaðarins eru heildar-
skuldir bænda vegna búrekstrar 1. ágúst
sl. í Stofnlánadeild og veðdeild Búnaðar-
banka íslands kr. 6.045.304 þúsund og hafa
hækkað frá fyrra ári um 27,92%. Samkomu-
lag varð í nefndinni að deila í heildar-
skuldafjárhæðina með þeim ærgildafjölda,
er var í eigu þeirra, sem lánarétt hafa í
deildum þeim, sem hér um ræðir. Sá ær-
gildafjöldi var við síðustu áramót um 1.766
þúsund og gaf það meðalskuld á ærgildi
3.423 krónur eða 1.506 þúsund á grund-
vallarbúið. Meðalvextir í báðum deildum eru
nú í haust 12,64% og auk þess verðbóta-
álag í Stofnlánadeild 1,09% á útlán hennar,
og verða því vextir og verðbótaálag fastra
lána nú kr. 204.810 í stað 116.156 í gildandi
grundvelli og er hækkunin 76,23%.
Þá varð samkomulag um að hækka lausa-
skuldir um svipað hlutfall eða úr 507 þús-
undum í 720 þúsund og vexti á þeim úr kr.
120.445 í gildandi grundvelli í 171 þúsund
kr. eða um 41,97%.
Óákveðnir eru enn þeir þættir verðlags-
grundvallar, sem tengdir eru launabreyting-
um 1. september n.k., þ.e. viðgerðavinna
F R E Y R
649