Freyr - 15.09.1978, Blaðsíða 17
Verðlagsnefnd að
störfum.
Þeir sem mót vélinni
snúa eru f. v.: Kristófer
Kristjánsson, Kristinn
Bergsveinsson, Ragrsar
Guðmunddsson, Krist-
inn Steingrímsson og
Ólafur Andrésson. Jón
Gucmundsson, Þórar-
inn Þorvaldsson og
Magnús Sigurðsson
snúa við henni baki.
Þórarinn Þorvaldsson flutti tillögu verð-
lagsnefndar um verðtilfærslu milli mjólkur-
afurða:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1978 styður ein-
dregið framkomnar hugmyndir um verðtilfærslu milli
mjólkurafurða með hliðsjón af eftirspurn eftir ein-
stökum vöruflokkum. Fulltrúar framleiðenda í sex-
mannanefnd eru því hvattir til að fylgja þessu máli
eftir í nefndinni sem fyrst.
Samþykkt samhljóða.
Þriðju tillögu verðlagsnefndar flutti
Kristófer Kristjánsson og var hún um mis-
hátt verð á mjólk eftir árstíðum:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1978 mælir með,
að tekið verði upp um land allt mishátt verð á inn-
lagðri mjólk eftir árstíðum þannig, að mjólk lögð
inn mánuðina september til febrúar verði greidd með
allt að 20% hærri útborgun en mjólk lögð inn aðra
árshluta.
Fundurinn felur Framleiðsluráði að vinna að sam-
ræmingu á framkvæmd samþykktar þessarar milli
mjólkurþúanna, svo hún verði sem allra líkust, hvar
sem er á landinu.
Sigurður Sigurðsson taldi heppilegra að
setja tímatakmörkin í tillögunni október til
mars. Haukur Steindórsson taldi rétt að
leita eftir hækkun afurðalána í sambandi
við hækkun útborgunar eftir tillögunni.
Engar breytingartillögur komu þó fram,
og var tillagan óbreytt samþykkt með sam-
hljóða atkvæðum.
11. Tillaga laganefndar.
Helgi Jónasson mælti fyrir þessari tillögu:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn á
Akureyri 29.—31. ágúst 1978, samþykkir að kjósa
þriggja manna millifundanefnd til að fjalla um til-
lögur til breytinga á samþykktum sambandsins.
Nefndin kanni m. a. viðhorf búnaðarfélaganna í
landinu til þeirrar tillögu að breyta kosningafyrir-
komulagi á fulltrúum á aðalfundi sambandsins.
Einnig og á sama hátt kanni nefndin viðhorf bún-
aðarfélaganna til tillagna um, að hagsmunasamtök
einstakra greina landbúnaðarins, svo sem Hags-
munafélag hrossabænda, Samband garðyrkjubænda,
Svínaræktarfélag íslands o. fl. fái beina aðild að
samtökunum og sérstaka fulltrúa á aðalfundi.
Engilbert Ingvarsson mælti gegn tillög-
unni, sagði, að stjórn Stéttarsambandsins
gæti framkvæmt þessa könnun, ef ástæða
væri til að gera hana.
Helgi Jónasson svaraði og rökstuddi til-
löguna.
Þórður Pálsson var samþykkur fyrri hluta
tillögunnar, en lagði til að fella niður síðari
hluta tillögunnar um hagsmunasamtök ein-
stakra greina.
Erlendur Árnason lýsti andstöðu við að
breyta samþykktum sambandsins, en taldi
þó ráðlegt að taka breytingatillögur til at-
hugunar.
Kristján Guðmundsson tók í sama streng.
Allir þessir ræðumenn mæltu gegn því,
F R E Y R
627