Freyr - 15.09.1978, Blaðsíða 56
SigurSur Þórólfsson,
Innri-Fagradal, Dalasýslu.
Þannig að það verður sennilega ofan á að leggja til,
að kosin verði nefnd til að kanna málið og leggja svo
tillögur fyrir næsta fund.
Þeir, sem rætt hafa um breytt kosningafyrirkomulag,
vilja leggja niður kjörmannafyrirkomulagið. Hvað finna
menn helst að því?
Þeir finna það að því, að það séu ekki nógu mikil
tengsl milli fulltrúanna á Stéttarsambandsfundunum
og hins almenna bónda.
Hvað um búnaðarsamböndin í þessu sambandi?
Búnaðarsamböndin eru í reynd viss tengiliður milli
Stéttarsambandsins og hins almenna bónda, þó að í upp-
hafi væri talað um, að hreppabúnaðarfélögin mynduðu
Stéttarsambandið beint, og þetta færi framhjá búnaðar-
samböndunum. En þetta hefur að nokkru breyst, og bún-
aðarsamböndin sjá um viss framkvæmdaratriði heima
fyrir, svo sem boða til almennra funda, auk þess sem þau
boða til kjörmannafundanna. Þá er málunum oft vísað
til búnaðarsambanda til umsagnar. En það var einnig
rætt um það í nefndinni, að kjörmannafundirnir, ef það
kerfi helst við, yrðu gerðir meira opnir fundir, þannig
að það yrðu almennir fundir þeim samhliða og að árið,
sem kjörmannafundir eru ekki, yrði reynt að hafa meira
opna bændafundi. Þetta hygg ég, að mundi tengja bænd-
ur meira því, sem er að gerast.
„Kjörmannafundir" ættu
að vera opnir bænda-
fundir.
En virðast ekki þessir kjörmenn, sem einungis eru
kjörnir til þess að kjósa aðra fulltrúa, vera óþarfur milli-
liður í lýðræðislegri uppbyggingu Stéttarsambandsins?
Það má segja það. Þó er aðstaðan misjöfn í héruðun-
um. í sumum héruðum er byggðin það dreifð, að spurn-
ing er um það, hvort menn sæktu almennt einn kjör-
fund. Maður gæti hugsað, að þau félög, sem afskekktust
eru, liðu fyrir það, að félagarnir hefðu erfiðari að-
stöðu til að sækja sameiginlega fundi. Þar með ættu þau
minni möguleika til að hafa áhrif á kjör fulltrúa á
Stéttarsambandsfundi.
Hafið þið rætt möguleikana á því að kjósa fulltrúana
almennri kosningu í sveitunum, í tengslum við Búnaðar-
þingskosningar til dæmis?
Við höfum rætt marga slíka möguleika, og útkoman
verður sjálfsagt sú, að sú nefnd, sem fær þetta til at-
hugunar á milli funda, kannar þessar leiðir allar, sem
taldar eru koma til greina. Það er til dæmis möguleiki
að senda kjörseðla heim til þeirra, sem kosningarrétt
hafa, og ýmislegt fleira má hugsa sér.
666
F R E Y R