Freyr - 15.09.1978, Blaðsíða 78
Fyrir kindur þær, sem slátrað er í þessum
tilgangi, skal ríkissjóður greiða sanngjarn-
ar bætur.
Fjáreigendum er skylt að greiða fyrir slík-
um skoðunum og rannsóknum og veita
nauðsynlega aðstoð.
7. gr.
Þegar niðurskurður á sauðfé fer fram vegna
riðuveiki eða kýlapestar, samanber 4. og 5.
gr., skal gæta þess að slátra því fé sér, og
má ekki hefja slátrun á öðru fé, fyrr en
lokið er sótthreinsun á sláturhúsi eða slát-
urstað svo og flutningavögnum.
Sömu varúðar skal gæta við slátrun á
einstöku sýktum eða grunuðum kindum.
Um sótthreinsun af þessum tilefnum skal
hlíta fyrirmælum sauðfjársjúkdómanefndar,
fulltrúa hennar eða kjötskoðunarlæknis.
8. gr.
Sauðfjársjúkdómanefnd er heimilt að fyrir-
skipa, að eytt skuli að fullu hræjum af sjúk-
um kindum, með því að brenna þau eða
grafa. Einnig getur hún fyrirskipað eyðingu
hausa og innyfla af fé frá bæjum, þar sem
sjúkdómar þessir hafa verið staðfestir.
9. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða sektum,
allt að kr. 50000.00, eða fangelsi og skal
með mál út af slíkum brotum farið sem al-
menn rögreglumál.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum
nr. 23 frá 10. mars 1956, 1. gr., um varnir
gegn útbreiðslu næmra sauðfjársjúkdóma
og útrýmingu þeirra, til að öðlast gildi þegar
í stað og birtist hér með til eftirbreytni öll-
um þeim, sem hlut eiga að máli.
Landbúnaðarráðuneytið, 18. júlí 1957.
Hermann Jónasson.
Árni G. Eylands.
Ráð við kúadoða
Kalsíumþörf kýr, sem er með kálfi, er nokk-
uð jöfn, allt til dagsins fyrir burð. Eykst þá
þörfin og er mikil allt mjólkurskeiðið. Sum-
ar kýr geta ekki aukið kalsíumtöku nógu
hratt við burðinn og fá doða. í breskum til-
raunum hefur kúm með fangi verið gefið
bygg í stað kalsíumauðugs kjarnfóðurs, og
rétt fyrir burð hefur kalsíumgjöf verið auk-
in. Þetta hefur reynst árangursríkt.
Samkvæmt fóðurskýrslum frá 40 bæjum
voru 562 fóðraðar á fyrrgreindan hátt. Af
þeim höfðu 256 áður fengið doða. Aðeins
31 kýr, sem sett var á ,,doðakúr“ sýndu
doðaeinkenni eftir það.
The Veterinary Record
18. mars, Nol 102, No 11.
Blóðtappi og lýsi -
innlegg í fituomræðuna
Tveir læknar í Álaborg hafa komið fram
með kenningu, sem kann að hafa heilla-
vænleg áhrif í baráttunni við blóðtappa. Að
því er Vendsyssel Tidende hermir, er kjarni
kenningarinnar sá, að í mat Grænlendinga
sé fitusýra, sem myndi s.k. prostaglandin.
Þetta prostaglandin hefur ekki þau skað-
legu áhrif, sem valda blóðtappa.
Það, sem kom jósku iæknunum á sporið,
var, að Grænlendingar, sem lifa á spiki og
fiski, fá mjög sjaldan blóðtappa. 10% lýsis
er þessi eftirsótta fitusýra.
Baug og Dyerberg segja, að ennþá sé
ekki gott að gera sér grein fyrir hvaða af-
leiðingar þessi uppgötvun þeirra muni hafa.
Þeir eru nú farnir til Grænlands til þess að
Ijúka rannsóknum sínum, en þær hafa stað-
ið í 10 ár. Að dómi læknanna nægja 30
grömm af lýsi á dag (2 matskeiðar) til að
koma í veg fyrir blóðtappa, ef menn eta
ekki því íeitari mat.
688
F R E Y R