Freyr - 15.09.1978, Blaðsíða 41
varnir höfðu haft í Bændahöllinni, og var
því breytt nokkuð til hagræðis. Sauðfjár-
veikivarnirnar fengu það herbergi, sem ég
hafði haft.
Umsvif í starfi sambandsins hafa aukist
mjög mikið. Samskipti við ýmsar opinberar
stofnanir aukast. Alls konar nefndastörf
einnig, og svo kemur fjöldi bænda og ým-
issa annarra manna á skrifstofu samtak-
anna og leita upplýsinga og leiðbeininga
um margvísleg málefni. Auk þessa alls þá
hefur á síðasta ári verið meira en nokkru
sinni áður um almenn fundahöld meðal
bænda, sem stjórnarmenn og starfsmenn
samtakanna hafa þurft að sinna.
Ég tel, að allir starfsmenn, bæði Fram-
leiðsluráðs og Stéttarsambandsins, hafi
lagt sig fram um að vinna störf sín vel og
leysa úr vandamálum. Ég þakka þeim öllum
fyrir störfin.
Ég þakka einnig meðstjórnarmönnum
mínum og Framleiðsluráðsmönnum gott
samstarf.
Ég óska þess, að þessi fundur leysi störf
sín farsællega af hendi, íslenskri bænda-
stétt til góðs.
Mjólkurframleiðslan í heiminum jókst
um 1.2% í fyrra.
Mjólkurframleiðslan á jörðinni jókst um 1.2
af hundraði á sl. ári, að því er heimildir frá
FAO herma. Aukningin stafar bæði af því
að kúm hefur fjölgað og nytin vaxið.
FAO er matvælastofnun Sameinuðu þjóð-
anna. Mjólkuraukningin nam 4.67 milljón
lestum og varð mjólkurframleiðsla í heim-
inum alls 399 milljónir lesta 1977. Kýrnar
voru 205.7 milljónir og hafði fjölgað um 1.9
milljón eða 0.9%. Meðalnyt hækkaði um 4
kg, í 1.938 kg.
í vanþróuðum löndum voru aðeins fram-
leidd 55 millj. tonn af mjólk. Mesta mjólkur-
landið var Sovétríkin með 91 millj. tonn,
næst komu Bandaríkin með 55.7 millj. tonn
og Frakkland með 30.1 millj. tonn, í Vestur-
Þýskalandi voru framleidd 22,5 millj. tonn
mjólkur, í Póllandi 16.5 millj. tonn, í Eng-
landi 14.5, í Brasilíu 11.4 og í Hollandi 10.3
míllj. tonn. Á íslandi tóku mjólkurbú á móti
um 119 þúsund íonnum af mjólk 1977.
•
Huppa á Brúnastöðum stendur sig vel.
Eydís Einarsdóttir, sem vann samkeppni
,,Mjólkurdagsnefndar“, hefur heppnina með
sér, þar sem fyrstakálfskvígan Huppa á
Brúnastöðum virðist ætla að halda góðri
nyt í sumar. Eydís fær greitt fullt verðlags-
grundvallarverð fyrir miólkina úr Hupou. í
síðasta mánuði mjólkaði Huppa 380 lítra,
grundvallarverðið er kr. 137,90 á lítra, svo
samtals fær Eydís frá Miólkurbúi Flóa-
manna 52.400 kr. Frá 1. mars og fram til 31.
júlí hefur Eydís fengið 254.528 kr. Huppa
hefur mjólkað á þessu tímabili 2011 Itr., hún
hefur fengið 594 kg af fóðurblöndu og um
900 fe í heyfóðri, en á tún var hún sett 17.
iúní. Fóðrið, sem Huppa hefur fengið, kost-
aði um 90.000 kr. Félagsbúið á Brúnastöð-
um hefur aftur á móti fengið greitt frá mjólk-
urbúinu 170 þús. kr. fyrir mjólkina úr Huppu,
þegar allur kostnaður hefur verið dreginn
frá við mjólkurframleiðsluna, eru eftir handa
bændunum upp í kaup 68 þús. kr. (UÞL)
íslenskur formaður nrrænu
bændasamtakanna NBC.
Á aðalfundi miðstjórnar norrænu bænda-
samtakanna, NBC, var Sveinn Tryggvason,
framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs, kjörinn
formaður miðstjórnarinnar. Aðalfundurinn
var að þessu sinni haldinn á Álandseyjum
í Eystrasalti. Fulltrúar Norðurlandanna
skiptast á um að gegna formennsku í NBC,
og Sveinn Tryggvason tók nú við af Heikki
Haavista, formanni finnska búnaðarfélags-
ins. Næsti aðalfundur miðstjórnar NBC
verður því haldinn á íslandi 1979.
F R E Y R
651