Freyr - 15.09.1978, Blaðsíða 34
þar bæði um að ræða tillögur Bsb. Eyja-
fjarðar um breytta uppbyggingu sambands-
ins, þar á meðal um breytta aðferð við full-
trúakjör. Einnig frá Hagsmunafélagi hrossa-
bænda um að fá rétt til að senda fulltrúa á
aðalfund með fullum réttindum. Verður
væntanlega skipuð sérstök nefnd á fundin-
um til að fjalla um þessi erindi.
Árni Jónasson, erindreki, gerði könnun á
lausaskuldum bænda, þeirra, sem höfðu
óskað eftir því við Stéttarsambandið að fá
lausaskuldum breytt í föst lán. Lauk hann
skýrslugerð um þetta efni í byrjun júlímán-
aðar. 406 bændur voru teknir í þetta upp-
gjör. Meðalskuldir þeirra í ársbyrjun 1977
voru kr. 4.717 þúsund, þar af lausaskuldir
kr. 2.563 þúsund, en í árslok voru heildar-
skuldir þeirra kr. 5.825 þúsund, en af því
voru kr. 2.980 þúsund lausaskuldir. Fjár-
festing var allmikil hjá hluta þessara manna
á árinu, sem veldur skuldaaukningunni.
Stjórn Stéttarsambandsins hefur óskað
eftir, að nánari könnun fari fram á aðstæð-
um þessara bænda og þeim, sem verst eru
settir, verði hjálpað til að breyta lausa-
skuldunum í föst lán með hagkvæmum
kjörum.
Forsætisráðherra ritaði stjórn sambands-
ins bréf haustið 1976, þar sem hann óskaði
eftir tilnefningu á manni af hálfu samtak-
anna til starfa í nefnd til að fjalla um verð-
bólguvandann í þjóðfélaginu. Stjórnin til-
nefndi Gunnar Guðbjartsson. Nefnd þessi
hóf störf þá um haustið og hélt nokkra
fundi um veturinn 1976—1977, en síðan
lágu nefndarstörf niðri til hausts 1977. Þá
hófust fundahöld að nýju.
Nefndin skilaði áliti í febrúarmánuði sl.
Meirihluti hennar lagði til gengislækkun
ásamt skerðingu á greiðslu launa frá því,
sem um var samið í síðustu kjarasamning-
um. Einnig var lögð áhersla á aðhaldsað-
gerðir í lánamálum o.fl.
Stjórn Stéttarsambandsins fjallaði um
þessi mál á fundi 7. febrúar og gerði um
þær ályktun í 11 liðum, og gerði ég þær
tillögur að fyrirvara mínum við afgreiðslu
tillagna verðbólgunefndarinnar til ríkis-
stjórnarinnar, en því miður tók ríkisstjórn
og Alþingi ekki nægjanlegt tillit til þeirra
ábendinga, sem sambandsstjórnin gerði, en
þær voru þessar:
„Stjórn Stéttarsambands bænda telur
nauðsynlegt, að gerðar verði efnahagsráð-
stafanir, bæði til að draga úr verðbólgu og
eins og ekki síður til að tryggja rekstur
atvinnuveganna og atvinnuöryggi í landinu.
Stjórn Stéttarsambandsins getur því eftir
atvikum fallist á 10—15% gengisfellingu
nú, enda verði gerðar hliðarráðstafanir til
að milda áhrif gengisfellingar á kjör þeirra
lægst launuðu, svo sem bænda.
Lögð verði áhersla á eftirtalin atriði:
1. Ekki verði lagðar hömlur á hækkun bú-
vöruverðs til bænda vegna hækkaðs
verðs aðfanga, svo sem kjarnfóðurs,
áburðar o.fl.
2. Sérstök áhersla er lögð á lækkun út-
söluverðs á búvörum með því, að sölu-
skattur af kindakjöti verði felldur niður
eða hann verði endurgreiddur og niður-
greiðslur auknar.
3. Verði lagðar hömlur á kaupgjaldshækk-
anir, mismunandi eftir launafjárhæð,
komi skýrt fram, hvort miðað er við
tímakaup dagvinnu, tímakaup miðað við
tiltekinn vinnutíma eða heildarfjárhæð
mánaðarlauna án tillits til tímafjölda,
sem unninn er.
4. Stjórn Stéttarsambandsins telur vaxta-
hækkun umfram það, sem orðið er,
varasama fyrir atvinnuvegi landsmanna
og getur ekki mælt með þeirri leið né
heldur verulegum samdrætti lánsfjár í
krónutölu frá síðasta ári hjá stofnlána-
sjóðum atvinnuveganna. Stjórnin leggur
áherslu á lögfestingu frumvarps um
breytingu á lögum um Stofnlánadeild
landbúnaðarins, sem nú er hjá ríkis-
stjórn.
5. Lögð er áhersla á nauðsyn þess að gæta
aðhalds í ríkisrekstri og þá helst á þann
644
F R E Y R