Freyr

Árgangur

Freyr - 15.09.1978, Síða 34

Freyr - 15.09.1978, Síða 34
þar bæði um að ræða tillögur Bsb. Eyja- fjarðar um breytta uppbyggingu sambands- ins, þar á meðal um breytta aðferð við full- trúakjör. Einnig frá Hagsmunafélagi hrossa- bænda um að fá rétt til að senda fulltrúa á aðalfund með fullum réttindum. Verður væntanlega skipuð sérstök nefnd á fundin- um til að fjalla um þessi erindi. Árni Jónasson, erindreki, gerði könnun á lausaskuldum bænda, þeirra, sem höfðu óskað eftir því við Stéttarsambandið að fá lausaskuldum breytt í föst lán. Lauk hann skýrslugerð um þetta efni í byrjun júlímán- aðar. 406 bændur voru teknir í þetta upp- gjör. Meðalskuldir þeirra í ársbyrjun 1977 voru kr. 4.717 þúsund, þar af lausaskuldir kr. 2.563 þúsund, en í árslok voru heildar- skuldir þeirra kr. 5.825 þúsund, en af því voru kr. 2.980 þúsund lausaskuldir. Fjár- festing var allmikil hjá hluta þessara manna á árinu, sem veldur skuldaaukningunni. Stjórn Stéttarsambandsins hefur óskað eftir, að nánari könnun fari fram á aðstæð- um þessara bænda og þeim, sem verst eru settir, verði hjálpað til að breyta lausa- skuldunum í föst lán með hagkvæmum kjörum. Forsætisráðherra ritaði stjórn sambands- ins bréf haustið 1976, þar sem hann óskaði eftir tilnefningu á manni af hálfu samtak- anna til starfa í nefnd til að fjalla um verð- bólguvandann í þjóðfélaginu. Stjórnin til- nefndi Gunnar Guðbjartsson. Nefnd þessi hóf störf þá um haustið og hélt nokkra fundi um veturinn 1976—1977, en síðan lágu nefndarstörf niðri til hausts 1977. Þá hófust fundahöld að nýju. Nefndin skilaði áliti í febrúarmánuði sl. Meirihluti hennar lagði til gengislækkun ásamt skerðingu á greiðslu launa frá því, sem um var samið í síðustu kjarasamning- um. Einnig var lögð áhersla á aðhaldsað- gerðir í lánamálum o.fl. Stjórn Stéttarsambandsins fjallaði um þessi mál á fundi 7. febrúar og gerði um þær ályktun í 11 liðum, og gerði ég þær tillögur að fyrirvara mínum við afgreiðslu tillagna verðbólgunefndarinnar til ríkis- stjórnarinnar, en því miður tók ríkisstjórn og Alþingi ekki nægjanlegt tillit til þeirra ábendinga, sem sambandsstjórnin gerði, en þær voru þessar: „Stjórn Stéttarsambands bænda telur nauðsynlegt, að gerðar verði efnahagsráð- stafanir, bæði til að draga úr verðbólgu og eins og ekki síður til að tryggja rekstur atvinnuveganna og atvinnuöryggi í landinu. Stjórn Stéttarsambandsins getur því eftir atvikum fallist á 10—15% gengisfellingu nú, enda verði gerðar hliðarráðstafanir til að milda áhrif gengisfellingar á kjör þeirra lægst launuðu, svo sem bænda. Lögð verði áhersla á eftirtalin atriði: 1. Ekki verði lagðar hömlur á hækkun bú- vöruverðs til bænda vegna hækkaðs verðs aðfanga, svo sem kjarnfóðurs, áburðar o.fl. 2. Sérstök áhersla er lögð á lækkun út- söluverðs á búvörum með því, að sölu- skattur af kindakjöti verði felldur niður eða hann verði endurgreiddur og niður- greiðslur auknar. 3. Verði lagðar hömlur á kaupgjaldshækk- anir, mismunandi eftir launafjárhæð, komi skýrt fram, hvort miðað er við tímakaup dagvinnu, tímakaup miðað við tiltekinn vinnutíma eða heildarfjárhæð mánaðarlauna án tillits til tímafjölda, sem unninn er. 4. Stjórn Stéttarsambandsins telur vaxta- hækkun umfram það, sem orðið er, varasama fyrir atvinnuvegi landsmanna og getur ekki mælt með þeirri leið né heldur verulegum samdrætti lánsfjár í krónutölu frá síðasta ári hjá stofnlána- sjóðum atvinnuveganna. Stjórnin leggur áherslu á lögfestingu frumvarps um breytingu á lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins, sem nú er hjá ríkis- stjórn. 5. Lögð er áhersla á nauðsyn þess að gæta aðhalds í ríkisrekstri og þá helst á þann 644 F R E Y R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.