Freyr - 15.09.1978, Blaðsíða 63
á þeim tíma, hvort hægt yrði að bjóða hey,
en Grænlandsverslunin aflaði jafnframt
tilboða í Danmörku og hefur ákveðið að
selja danskt gróffóður til Grænlands nú
í haust. Gísli Kristjánsson var nýlega á
ferð í Grænlandi og ræddi þá við ýmsa
forsvarsmenn bænda. Þeir hafa mikinn
áhuga á verslun við okkur í framtíðinni,
en verslun verður gefin frjáls í Grænlandi
á næsta ári. Ræddu Grænlendingar um það
við Gísla, að teknar yrðu upp viðræður
um heyverslun þegar á næsta vori, og var
rætt um a. m. k. 200 tonna magn.
Það er ljóst, að ýmis vandamál þarf að
leysa í sambandi við útflutning á miklu
magni af heyi með skipum. Það er mikið
atriði, að lestun og losun skipa gangi fljótt
fyrir sig. Einnig þarf að huga vel að rýrn-
un við meðhöndlun. Því hefur nefndin
kannað nokkuð, hvaða tækni þurfi að beita
við útflutning á heyi, og hefur í því skyni
verið athugað að kaupa vélar, sem binda
í stórbagga, 4—700 kg. Flestar vélarnar,
sem á markaði eru, binda í sívala bagga,
sem rúmast verr en kantaðir. Einnig hefur
verið kannað nokkuð notagildi vélar, sem
bindur saman „venjulega“ bagga, 16—20
stykki. Eru nokkrar líkur til, að slík vél
geti hentað okkur.
Lokaorð.
Hér hefur verið stiklað á stóru í starfi
markaðsnefndarinnar. Frekari upplýsing-
ingar um einstaka þætti eru að sjálfsögðu
ávallt til reiðu, en það yrði of langt mál
að gera þeim ítarlegri skil í þessari skýrslu.
í starfi markaðsnefndar hefur það kom-
ið berlega í ljós, að þetta er umfangsmikið
og vandasamt starf, sem henni er fengið.
En þetta svið — sala íslenskra búvara —
er ekki þýðingarminnsti hlekkurinn, því
án sölu afurðanna verður ekki stundaður
mikill landbúnaður.
Eftir því sem framleiðsla eykst í land-
búnaðinum, vex þörfin fyrir skipulegt sölu-
og kynningarstarf.
Yfiriýsing
Stjórn BúnaSarfélags íslands ákvað á fundi 24. ágúst 1978 að mæla fram-
vegis því aðeins með útflutningi stóðhesta, að þeir séu tamdir og ekki
seldir fyrir lægra verð en eina milljón króna.
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS.
F R E Y R
673