Freyr - 15.09.1978, Side 21
Framleiðslunefnd.
Talið frá vinstri:
Árni Helgason,
Jónas R. Jónsson,
Þórður Jónsson,
Magnús Guðmundss.,
Þorsteinn Geirsson,
Sigsteinn Pálsson,
Stefán A. Jónsson
og Sigurður Líndal.
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1978 mótmælir
harðlega stórfelldum sveiflum á niðurgreiðslum á
landbúnaðarvörur. Skorar fundurinn á ríkisstjórnina
að halda niðurgreiðslum stöðugum sem vissum
hundraðshluta af verði landbúnaðarvara og breyta
þeim ekki nema með samráði við bændasamtökin.
Samþykkt samhljóSa.
Enn flutti Ólafur Eggertsson þessa tillögu
allsherjarnefndar um jöfnun flutningskostn-
aðar:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda felur stjórn sam-
bandsins að gera athugun á því, hvort og hvernig
koma megi á jöfnuði á flutningskostnaði fóðurvara.
Samþykkt samhljóða.
Einar Þorsteinsson lagði fram 9. tillögu
allsherjarnefndar og mælti fyrir henni: um
niðurfellingu tolla og lækkun aðflutnings-
gjalda af landbúnaðarvélum:
Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1978, haldinn
á Akureyri 29. og 30. ágúst, ítrekar samþykktir fyrri
aðalfunda um lækkun aðflutningsgjalda af jeppa-
bifreiðum, niðurfellingu tolla, vörugjalds og sölu-
skatts af vélum og tækjum til landbúnaðar og vara-
hlutum til þeirra.
Jafnframt þakkar fundurinn þær tollalækkanir á
tækjum til landbúnaðar, er samþykktar voru á síð-
asta Alþingi.
Fundurinn mótmælir þeim hækkunum á tolli og
innflutningsgjöldum af jeppabifreiðum, sem komu til
framkvæmda árið 1976, og gerir kröfu til, að verð
þeirra bifreiða sé ekki hærra en svo, að bændum
verði mögulegt að kaupa þær og endurnýja á eðli-
legan hátt, þar sem um er að ræða nauðsynleg sam-
göngutæki í dreifbýli. Því felur fundurinn stjórn
Stéttarsambandsins að vinna áfram að lækkun að-
flutningsgjalda af jeppabifreiðum til bænda.
Einnig leggur fundurinn ríka áherslu á, að tollar,
vörugjald og söluskattur af vélum, sem fluttar eru
inn vegna landbúnaðarins, og varahlutum til þeirra
verði felldur niður, svo landþúnaðurinn fái notið sömu
kjara og sjávarútvegur og iðnaður. Beinir fundur-
inn því til stjórnar Stéttarsambandsins að fylgja þessu
mikla hagsmuna- og réttlætismáli landbúnaðarins
fast eftir við stjórnvöld.
Þórður Pálsson taldi, að það gæti verið
neikvæðara fyrir framgang tillögunnar að
hafa í henni kröfu um lækkun aðflutnings-
gjalda af jeppabifreiðum.
Gunnar Guðbjartsson og Stefán A. Jóns-
son tóku til máls og ræddu tillöguna.
Fundarstjóri óskaði þá eftir, að nefndin
tæki tillöguna til endurskoðunar.
Frestaði hann síðan fundi til kl. 9 næsta
dag og lauk fundarstörfum þar með þetta
kvöld kl. 23.40.
Fimmtudaginn 31. ágúst hófst fundur enn á
ný kl. 9.10. Haldið var áfram með afgreiðslu
tillagna frá allsherjarnefnd.
Lögð var fram þessi tillaga um fjárkláða.
Framsögumaður Jón Guðbjörnsson.
F R E Y R
631