Freyr

Årgang

Freyr - 15.09.1978, Side 31

Freyr - 15.09.1978, Side 31
komu til starfa í Framleiðsluráði, þeir Guð- laugur Björgvinsson frá Mjólkursamsölunni, í stað Stefáns Björnssonar, sem lengi hefur setið í Framleiðsluráði, og Árni Jóhannsson á Blönduósi, sem kom inn í stað Helga R. Traustasonar sem fulltrúi mjólkursamlag- anna utan 1. sölusvæðis. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka þeim Stefáni og Helga heilladrjúg störf í Framleiðsluráði í þágu landbúnaðarins á undanförnum árum, um leið og nýju fulltrúarnir eru boðnir velkomn- ir. Fljótlega eftir aðalfundinn í fyrra hófust störf í nefndinni, sem endurskoðar Fram- leiðsluráðslögin. Starfið beindist einkum að mótun lagaákvæða um heimildir til skipu- lagsaðgerða. Var þar í meginatriðum stuðst við tiliögur frá árinu 1972 um sama efni, en reynt að samræma þær tillögum aðalfund- arins. Nefndin lauk þessari tillögugerð í byrjun nóvember. Þá ákvað stjórn sam- bandsins að kynna bændum tillögurnar á almennum fundum bænda, eftir því sem fært væri, en að því búnu leggja þær fyrir aukafund, sem var boðaður og haldinn 30. nóvember sl. Margir bændafundir voru haldnir í nóvembermánuði, en þó vannst ekki tími til að fara í öll byggðarlög til að kynna tillögurnar, enda var tíðarfar óhag- stætt um þær mundir. Aukafundurinn fjallaði síðan um tillög- urnar og samþykkti þær að uppfylltum þremur skilyrðum: 1. Breytt verði þeim reglum, sem Hagstofu íslands hafa verið settar um útreikning verðmætis aukabúgreina og hlunninda, svo sem rök hafa verið færð fyrir, að rétt sé, svo bændur þurfi ekki að taka á sig hærri verðjöfnunargjöld vegna kjötfram- leiðslu frá haustinu 1976 en þegar hafa verið ákveðin. 2. Felldur verði niður söluskattur af kjöti og kjötvörum, án þess að niðurgreiðslur verði skertar. 3. Ríkissjóður veiti landbúnaðinum fjár- hagslegan stuðning við sölu smjörs á niðursettu verði. Strax að loknum aukafundinum voru til- lögur hans sendar landbúnaðarráðherra og ríkisstjórn og óskað eftir framgangi þeirra. En fljótlega eftir fundinn hófust fundahöld meðal bænda, og komu allvíða fram mót- mæli gegn samþykktum aukafundarins og einkum þó tillögunni um heimild ti! töku fóðurbætisgjalds. Var mörgum þessara til- lagna beint til Alþingis og ríkisstjórnar og var skorað á þessa aðila að stöðva fram- gang tillagnanna. Ekki voru nærri allir bændaíundirnir neikvæðir í þessu efni, þvert á móti. Það komu margar tillögur, sem studdu samþykktir aukafundarins. En það lát svo hátt í andstæðingunum, að stjórnvöldin heyktust á að breyta Fram- leiðsluráðslögunum að þessu sinni. Málið var því stöðvað. Augljóst var, að ýmsir menn, sem hæst lét í, höfðu ekki hugsað málið til enda, eða gert sér Ijóst, hvað við tæki, ef ekkert yrði gert til að hamla gegn vaxandi framleiðslu og engir nýir mögu- leikar aðrir opnuðust. Skilyrði þau, sem aukafundurinn setti fyr- ir samþykkt sinni, voru ekki viðurkennd eða framkvæmd beint í því formi, sem þau voru samþykkt, heldur var komið til móts við þau á annan hátt. Fyrsta atriðið um breyttar reglur um verðmætamat búvöruframleiðsl- unnar fékkst ekki fram. Hins vegar sam- þykkti ríkisstjórnin að greiða eftirstöðvar útflutningsbóta þriggja ára, sem samanlagt námu um 521 milljón króna, og var það fé notað til að greiða eftirstöðvar af reikning- um frá síðasta verðlagsári og það, sem búið var að taka í verðjöfnunargjald að hálfu, og varð þó afgangur að upphæð kr. 70.331.226,00, sem var greiddur til sælgæt- isgerða og á framleiðslu þessa árs (kr. 47.134.476,00). Annað skilyrði um niðurfellingu sölu- skatts af kjöti og kjötvörum fékkst alls ekki fram, en því var að nokkru mætt með aukn- um niðurgreiðslum kjöts frá 1. mars, og F R E Y R 641

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.