Freyr

Árgangur

Freyr - 15.09.1978, Síða 33

Freyr - 15.09.1978, Síða 33
sem verða skýrðar sérstaklega á fundin- um. Stjórn sambandsins hefur fjallað um margháttaðar styrkbeiðnir á árinu. Kvenfé- lagasamböndin fengu sl. ár kr. 2.508 þús- und skv. fyrri samþykkt aðalfundar. Rannsóknastofnun landbúnaðarins sótti um styrk til rannsóknar á kjötgæðum dilka, sem aldir voru á mismunandi hátt, þar á meðal á káli, og var tilgangurinn sá að meta áhrif fóðursins á fallþunga þeirra, hlutfall fitu og vöðva og bragðgæði kjötsins í hverj- um flokki. Einnig efnagreining kjötsins og samsetning fitunnar. Farið var fram á 3 milljóna kr. styrk til þessa verkefnis. Stjórnin taldi sér ekki fært að ráðstafa svona miklu fé án samþykkis Stéttarsambandsfundar, en taldi þó málefn- ið svo mikilsvert fyrir kjötmarkaðinn, að nauðsynlegt væri að sinna því. Stjórnin tók þá ákvörðun að láta allt að einni milljón króna í verkið. Hún beitti sér fyrir, að Fram- leiðnisjóður lét annað eins, en hefur á- kveðið að leggja fyrir aðalfund tillögu um viðbótarframlag, svo verkinu yrði lokið. Ákveðið var að verja 100 þúsund kr. til styrktar útgáfu á bréfum Torfa í Ólafsdal. Ungum bændum, sem fóru á fund í Nor- egi, var veittur 50 þúsund kr. ferðastyrkur. Svínaræktarfélagi íslands voru veittar 150 þúsund kr. í rekstrarstyrk. Fleiri minniháttar styrkir hafa verið veittir. Eins og áður hefur komið fram var mikið unnið að umbótum í rekstrar- og afurða- lánum, bæði með viðræðum við ráðamenn og bréfaskriftum til Seðlabankans með upp- lýsingum um breytingar á verði og magni búvöru. Sérstök hríð var gerð í þessu efni í desember, eftir að verðið var hækkað um h.ub. 18%, og fékkst þá viðurkenning á, að tekið yrði tillit til þeirrar hækkunar við aígreiðslu afurðalánanna. Heilbrigðisráðherra var skrifað bréf um, að sveitakonur fengju greitt fæðingarorlof eins og konur, sem vinna launþegastörf. Útvarpsráði var skrifað og þess krafist, að búnaðarþátturinn „Spjallað við bændur“ yrði aftur upp tekinn. Árangurinn varð þátt- ur sá, sem Jónas Jónsson sér um og hófst í maímánuði sl. Bændur í Barðastrandarhreppi skrifuðu stjórn sambandsins og óskuðu eftir stuðn- ingi við kröfu sína um forgangsrétt til grá- sleppuveiða utan við strönd sveitarinnar. Stjórnin varð við þessari beiðni og ritaði sjávarútvegsráðherra bréf um málið, en fékk svarbréf með algjörri synjun. Ákveðið var, að Stéttarsambandið tæki þátt í þróunardeild landbúnaðarsýningar- innar á Selfossi, og var Hákon Sigurgríms- son fulltrúi Stéttarsambandsins í nefnd þeirri, er undirbjó þann þátt sýningarinnar. Þessu fylgdi engin kvöð um fjárhagslega ábyrgð á sýningarhaldinu umfram hlutdeild í kostnaði þessarar deildar. Sýning þessi var mjög myndarlega úr garði gerð, og má vænta góðs árangurs af henni. Einkunnar- orð hennar voru aukin kynning sveitar og þéttbýlis. Á sl. ári var gerð krafa til greiðslu eign- arskatts af Bændahöllinni. Þessari kröfu var synjað á þeirri forsendu, að bænda- samtökin væru ekki skattskyld fremur en önnur stétta- og menningarfélög. Þessi krafa hefur ekki enn náð fram að ganga, en verði gerð gangskör að innheimtu skattsins, er vegið að öllu frjálsu félags- starfi í landinu og hætt er við, að það geti haft alvarlegar afleiðingar, því þykir mér Alþingi ekki hafa markað línur nægjanlega skýrt varðandi skattlagningu félaga, svo sem áður er frá greint. Gengið var frá kaupum á íbúð fyrir for- mann sambandsins að Kaplaskjólsvegi 39, og hefur hann búið þar síðan í nóvember. Kaup þessi voru mjög hagstæð að öllu leyti. Fjölmörg erindi hafa sambandinu borist. Sum þeirra hafa verið þess eðlis, að unnt hefur verið að svara þeim um hæl, en önnur koma fyrir þennan fund, þar á meðal fjöldi tillagna frá bændafundum og ýmsum aðilum. Meðal annars eru þar tillögur um breytingar á samþykktum sambandsins. Er F R E Y R 643
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.