Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 37

Freyr - 15.09.1978, Page 37
Birgðir osta eru nú talsvert meiri en í fyrra á sama tíma og smjörbirgðir meiri en nokkru sinni áður á þessum árstíma. Nauð- synlegt er að minnka mjólkurvörubirgðir til að losa fé mjólkursamlaganna og bank- anna, sem er bundið í birgðum. 1. ágúst sl. voru birgðir af smjöri 1.065 tonn og ostum 1.196 tonn. Verðlagsmál. Eins og fram kom á aðalfundinum í fyrra var þá samið til bráðabirgða og átti það samkomulag að gilda til 15. októþer. Strax eftir aðalfundinn var farið að vinna að gerð nýs grundvallar, en þá stóð á upplýsingum, sem von var á frá Hagstofunni, um úrtak af framtölum bænda frá rekstrarárinu 1976. Það úrtak kom 12. október. Því var naumur tími til stefnu með tillögugerð og samninga. Fulltrúar framleiðenda gerðu strax tillögu til nýs verðlagsgrundvallar, er fól í sér marg- víslegar leiðréttingar frá fyrra grundvelli og gerði hún ráð fyrir 26,0% hækkun útgjalda við vísitölubúið. Megináhersla var lögð á leiðréttingu fjármagnsþátta grundvallarins svo og á laununum. Þar á meðal var tillaga um 312 stunda helgidagagreiðslu til bónd- ans vegna viðveruskyldu, og að húsfreyjan fengi sömu laun og bóndinn. Fleiri leiðrétt- ingar fólust í þessu. Fljótlega kom í Ijós, að neytendafulltrú- arnir töldu sig ekki geta fallist á þessa til- lögu og raunar ekki á neitt, er fæli í sér einhverja verðhækkun búvara, og því var ágreiningi um gerð grundvallarins vísað til yfirnefndar 28. október. Yfirnefndin var ekki fullskipuð fyrr en um miðjan nóvember, m.a. vegna þess, að neyt- endafulltrúarnir vildu ekki tilnefna mann í nefndina sjálfir, og kom það í hlut félags- málaráðherra að gera það. Yfirnefndin var skipuð þessum mönnum: Guðmundi Magnússyni, tilnefndum af Hæstarétti sem formaður, Sveini Tryggva- syni, tilnefndum af framleiðendafulltrúum sexmannanefndar, og Jóni Þorsteinssyni, F R E Y R skipuðum af ráðherra fyrir hönd neytenda- fulltrúa sexmannanefndar. Nefndin felldi úrskurð 2. desember. Úr- skurðurinn fól í sér 7,1 % hækkun gjaldaliða verðlagsgrundvallarins frá bráðabirgða- grundvellinum 1. seþt. Mestur niðurskurð- ur á tillögum framleiðenda var á fjármagns- og launaliðnum, m.a. var synjað kröfunni um sömu laun húsfreyju og bóndans. Leitað var til Jafnréttisráðs um úrskurð um lög- mæti þeirrar ákvörðunar. Svar Jafnréttis- ráðs var á þá leið, að það teldi úrskurðinn um þetta efni rangan, en taldi sig ekki hafa rétt til að fella dóm um málið. Stjórn Stétt- arsambandsins fjallaði ítarlega um þetta atriði og leitaði sérstaks lögfræðiálits um það, og var það álit á sömu lund og svar Jafnréttisráðs. En þar sem hálft verðlags- árið var liðið, þegar þessi svör lágu fyrir, og gera mátti ráð fyrir, að málshöfðun og málarekstur fyrir almennum dómstólum tæki nokkra mánuði, þótti stjórninni ekki rétt að leggja í opinberan málarekstur að sinni, en reyna með öllum ráðum að fá þetta leiðrétt við verðlagningu nú í haust. Með skýrslu þessari fylgir yfirlit um til- lögur framleiðenda um nýjan verðlags- grundvöll og til samanburðar niðurstaða úr- skurðar yfirnefndar. Eftir að yfirnefndarúrskurðurinn féll, var grundvöllurinn umreiknaður að nýju miðað við verðlags- og kaupbreytingar frá 1. sept- ember og einnig reiknað tap bænda vegna dráttar á verðlagningu og því bætt við verð- lagið, er tók gildi 7. desember. Síðan var gerður framreikningur, bæði 1. mars og 1. júní, svo sem venjulegt er. Grundvöllurinn hefur hækkað frá 1. september 1977 til og með 31. ágúst um kr. 2.793.499,00 eða 47,45%. Mest hækkun er á launaliðnum, kr. 1.552. 787,00 eða 47,18%, á kjarnfóðri er hækk- unin 230 þúsund eða 34%, á áburði kr. 221.562 eða 35,4%, rekstur véla kr. 213.413 eða 45,9%, vextir hafa hækkað um kr. 86.387 eða um 33,76%, annar kostnaður um kr. 189.828 eða um 96,2%, flutningar 647 L

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.