Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 38

Freyr - 15.09.1978, Page 38
um kr. 90.614 eða um 40,4%, fyrning og viðhald útihúsa um kr. 70.579,00 eða um 73,6%. Um aðra þætti verðlagningar svo sem slátrunar-, frystingar- og heildsölukostnað kjöts, vinnslu- og dreifingarkostnað mjólk- ur, verðlagningu kartaflna og hrossakjöts, svo og um vaxta- og geymslugjald kjöts og kartaflna o.fl. vísast til skýrslu Framleiðslu- ráðs, sem útbýtt er á fundinum. Undirbúningur að haustverðlagningu nú hófst á venjulegum tíma, þegar gögn komu írá Hagstoíu íslands um miðjan ágústmán- uð. Þá komu upplýsingar um breytingar á verðlagi rekstrarvara frá 1. júní sl. Einnig voru þá fengnar upplýsingar um kaupgjald hjá þeim aðilum, sem kaup í verðlags- grundvelli er við miðað. Þá lá fyrir niður- staða búreikninga sl. árs. Hins vegar kom ekki úrtak Hagstofunnar úr skattskýrslum fyrr en 21. þ.m. Niðurstaða búreikninga sýnir, að meðal- tekjuaukning á búreikningabúunum frá ár- inu 1976 hefur orðið um 65% á fjölskyldu- launum og vöxtum af eigin fé. Þetta skiptist misjafnt á búin eftir samsetningu þeirra. Kúabúin sýna 79% aukningu þessara tekna, blönduðu búin 63,2% og fjárbúin 44,9%. Skýringa á þessum mun er að leita í ýmsu, t.d. varð afurðaaukning á nautgripahluta búanna en ekki hjá sauðfjárbúunum. Tíðarfar var mun betra á mjólkurfram- leiðslusvæðunum sunnan- og vestanlands 1977 en 1976. Mjólkurframleiðslan naut auk þess sérstaklega lágs kjarnfóðurverðs á árinu. Hins vegar koma hækkaðir vextir meira niður á sauðfjárbúunum vegna tregari sölu og lengri veltutíma afurða þeirra og hlutfallslega lægra útborgunarhlutfalls en árið 1976 vegna seinkunar á gerð aðal- grundvallar haustsins, sem venja er að miða haustgreiðsluna við. Enginn fram- leiðsluauki kom fram í sölu sauðfjárafurð- anna, en ásetningur varð meiri en árið áður og í því fólst nokkur framleiðsluauki. Úrtak búreikningabúanna var vel unnið að vanda, eini gallinn er sá, að flokkun út- gjaldanna er ekki í samræmi við það, sem er í verðlagsgrundvelli. Samkvæmt sérúrtaki Hagstofu íslands hafa nettótekjur 60 búa, er í úrtakið koma, aukist frá árinu 1976 um 77,3%. Augljósir eru gallar á tölum skattskýrslnanna. T.d. telja 7 bændur engan rafmagnskostnað, sem er augljóslega rangt, og vaxtagjöldin eru allt of lág miðuð við skuldafjárhæð, og flutningskostnaður er alls ekki allur talinn fram, hvorki á mjólk né á sláturfé, og fleira er mjög óljóst og illa upplýst í úrtökunum. T.d. telja 12 bændur ekkert viðhald girðinga og átta bændur engin vaxtagjöld, þó aðeins tveir bændur telji engar skuldir. í tekjuhlið framtalanna eru taldar tekjur utan bús og þær skiptast þannig, að bænd- urnir sjálfir eru með að meðaltali kr. 98. 856,00, börn innan 16 ára aldurs að meðal- tali kr. 102.500,00 og eiginkonur að meðal- tali kr. 102.617,00. Ég verð að segja, að tölurnar fyrir börnin og eiginkonurnar eru tortryggilegar í mín- um augum. Ég þekki ekki, að börn í sveit- um eða konur í sveitum vinni almennt fyrir verulegum launum utan heimilis. Því er þetta úrtak tortryggilegt í mínum augum af þessum og mörgum öðrum ástæðum. Mér þykir illt, að bændur skuli ekki geta gengið þannig frá framtölum sínum, að unnt sé að byggja á þeim og draga af þeim raunhæfar ályktanir. Ég vil skora á bændur að hrista af sér það óorð, sem á þeim liggur, um óvönduð skattframtöl. Þeir eiga mikið í húfi sjálfir að taka megi mark á þeim og þeir, sem að hagsmunamálum þeirra vinna, geti treyst því, að þeir séu með réttar upplýs- ingar í höndunum, þegar úrtak skatt- skýrslna er um að ræða. Stéttarsambandið sjálft lét vinna úrtak úr skattskýrslum núna eins og undanfarin ár. Niðurstaða þess úrtaks staðfestir flesta þá galla, sem eru í úrtaki Hagstofu íslands, þó gallarnir séu ekki alveg eins miklir. T.d. eru meðalvextir af skuldum í árslok, öðrum en við Bjargráðasjóð, í því úrtaki 10,5%, en vextir skv. úrtaki Hagstofu íslands eru að 648 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.