Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 43

Freyr - 15.09.1978, Page 43
Búnaðarsamböndin tengiliður bændanna í hreppabúnaðarfélög- unum, bæði við Stéttar- sambandið og Búnaðar- félag íslands. Nauðsynlegt að styrkja starfsgrundvöll búnaðarsambandanna í heild. bands bænda og Búnaðarfélags íslands, þó að menn geri sér auðvitað grein fyrir verkaskiptingu eða hlutverk- um hvors fyrir sig. Ég vil heldur ekki breyta neinu í þessari verkaskipt- ingu eða slá neinu saman, en ég tel tvímælalaust rétt, að búnaðarsamböndin séu sá aðili heima fyrir, sem er tengiliður bændanna í hreppabúnaðarfélögunum, bæði við Stéttarsambandið og Búnaðarfélag Islands, og þau sameini hvort tveggja, kjaramálin og leiðbeininga- og fagmálin. Búnaðarsamböndin eru, skipulagslega séð, steinar í byggingu Búnaðarfélags Islands, en strangt til tekið hafa þau ekki annað hlutverk í skipulagi Stéttarsam- bandsins en að boða til kjörmannafunda annað hvert ár. En samt sem áður held ég, að bændum finnist, að búnaðarsamböndin eigi þarna hlutverki að gegna, og því finnst mér augljóst að einfalda megi þetta kerfi og afnema þetta milliþrep, sem eru þessir kjörmenn. Ég held, að þetta yrði í alla staði til að einfalda hlut- ina og ætti að geta aukið skilning hins einstaka bónda á því, hvernig hann tekur þátt í störfum stéttarsamtaka sinna. Þá mundu menn líka líta á búnaðarsamböndin sem lið í kjarabaráttutækjum sínum. Þannig finnst mér, að búnaðarsamböndin verði, skipulagslega séð, bæði fagfélög og kjarafélög. Eins mundi ég vera alveg á móti því að kljúfa þessi félög niður með því að stofna ný hagsmunafélög eða kjarafélög. Þá væri líka rétt, að það kæmi fram, að ég tel rétt og nauðsynlegt að styrkja starfsgrundvöll búnaðarsam- bandanna í heildinni. Og ég gæli við þá hugmynd, að þau geti eflst bæði fjárhagslega og félagslega þannig, að þau verði okkar aðalfélagslegi vettvangur í héruðun- um. Þar komi saman kjaramálin og leiðbeiningaþjónust- an og þessari eflingu náum við ekki með því að dreifa kröftunum. Þú lagðir orð í belg um þær tillögur eða drög að til- lögum, sem komu frá svonefndri sjömannanefnd. Þar er bæði reiknað með heimildum til töku fóðurbœtisgjalds og ákveðnu verðjöfnunargjaldskerfi, sem kalla má kvóta- kerfi. Hvert er álit þitt á þessum tillögum? Ég lýsti því í fyrra, að ég væri fylgjandi innflutnings- gjaldi á fóðurbæti, sem mundi þá verða notað til verð- jöfnunar, bæði þegar á skorti, að útflutningsbætur nægðu, og annars. Þetta fé og ráðstöfun á því væri að öllu leyti í höndum bændasamtakanna. Það er stórt atriði, að við höfum fullt ráðstöfunarvald yfir því. Ég hef verið tor- F R E Y R 653

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.