Freyr

Årgang

Freyr - 15.09.1978, Side 44

Freyr - 15.09.1978, Side 44
Fylgjandi innflutnings- gjaldi á fóðurbæti — ef féð og ráðstöfunar- réttur á því yrði að öllu leyti í höndum bændasamtakanna. Tel að báðar leiðir eigi að vera opnar. trygginn á það, það er að segja framkvæmd þess. Það virðast alltaf vera svo margir hugsanlegir möguleikar til að fara kringum það. En þessar tillögur nefndarinnar eru nákvæmari og gleggri varðandi framkvæmd þessa heldur en aðrar, sem ég hef áður séð gerðar, síðan ég fór að velta þessu fyrir mér, og eru að mörgu leyti at- hyglisverðar og sjálfsagt raunhæfar. Ég benti þó á, að æskilegt væri, að minnstu búin yrðu ekki gjaldskyld. Það er talað um að taka 2% gjald af framleiðslu allra búa, hve lítil sem þau eru. Ég tel eðli- legra, að t.d. 200 ærgilda bú og minni yrðu gjaldfrí, jafnvel þó að það yrði að fara upp í hærri hundraðs- hluta með gjaldið á stærri búin. Finnst þér líklegt á þessari stundu, þegar fundur er í miðjum klíðum, að það verði samþykkt að halda opnum báðum þessum leiðum? Og í öðru lagi að þær verði farnar báðar? Þessar tillögur eru ekki endanlegar frá sjömanna- nefndinni, en lagðar fram til að fá álit okkar á þeim. Ég þykist vita, að það komi og verði jákvætt. Ég tel, að báðar þessar leiðir eigi að vera opnar og að það verði möguleiki að grípa til þeirra beggja. Fram- leiðsluráð á að hafa í þessu efni nokkurt svigrúm. Ég hef bent á það á bændafundum í umræðum um þessi mál, að Framleiðsluráð eigi að hafa miklu meiri stjórn- unarmöguleika í sambandi við það fjármagn, sem kem- ur frá opinberum aðilum í sambandi við þessi mál. Á ég þar við niðurgreiðslur, útflutningsbætur og hluta af jarðræktarstyrk. Ég vil, að þetta þróist í það horf, að þetta verði ákveðnar upphæðir, sem ákvarðaðar séu eftir ákveðnum forskriftum, annað hvort í hundraðs- hlutum eða á annan hátt, hvernig svo sem þær verða fundnar, og svo hafi Framleiðsluráð möguleika á að beita þeim til stjórnunar. Við yrðum þá ekki háðir pólitísku ákvörðunarvaldi, til dæmis með það hvað niðurgreiðslur yrðu stór þáttur af útsöluverði vara okk- ar hverju sinni. Það er of hættulegt fyrir markaðinn, að ég hygg. Frumskilyrði er að breyta þeirri samnings- stöðu, sem við höfum, því að nú getum við aðeins samið um hluta af því, sem við þurfum að semja um. Því vil ég semja við ríkið. 654 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.