Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 46

Freyr - 15.09.1978, Page 46
Eigum á hættu að glata þeirri viðurkenningu, sem við höfðum á sérkennum íslensku ullarinnar. Sanngjarnara að setja kvóta á kjarnfóður. við höfum á sérkennum íslensku ullarinnar. Auk þess sem við lendum svo aftur í samkeppni við þær vörur, sem unnar eru úr útflutta bandinu. Þarna er líka verið að láta erlent vinnuafl vinna það, sem íslenskar hendur gætu gert og ættu að gera. Við ættum þarna að hafa algeran einkarétt á íslensku ullinni og íslensku hefðinni og halda uppi verðinu á grundvelli þess, að þetta sé eingöngu íslensk framleiðsla. Ullariðnaðurinn er einmitt mjög vel fallinn til þess að auka fjölbreytni atvinnulífsins í sveitum og á smærri stöðum. Þetta er mjög þægilegur iðnaður, sem hægt er að koma við án mikils stofnkostnaðar og ekki þarf bein- línis að vera í stórum einingum. Að lokum, Stefán, þessi sígildu deilumál, sem eru að verða hér á fundinum, um kvótakerfi og kjarnfóðurskatt, og nú birtast okkur í formi tillagna frá sjömannanefnd- inni. Hvað viltu segja um þau eða þær tillögur? Mér virðist sem sjömannanefndin hafi lagt nokkuð rnikla vinnu í að móta álit sitt, þó að það sé nú ekki fullbúið enn. Mér virðist einnig, að kvótakerfið í þeirri mynd, sem hún setur það fram, muni á margan hátt frekar sanngjarnt miðað við það, sem virðist nú raunar alveg augljóst, að það þurfi að koma til takmörkunar á framleiðslunni. Aftur á móti er ég ekki sammála tillögum um kjarn- fóðurskatt eins og þær komu fram í byrjun. Ég tel miklu sanngjarnara að setja kvóta á kjarnfóður. Skammta hann þannig, að menn fái ákveðið hámarksmagn af kjarn- fóðri skattlaust á hvern framtalinn grip. Þannig að þeir menn, sem mikinn fóðurbæti nota, mundu draga úr notkun hans. Hins vegar virðist mér af þeim tillögum, sem gerðar eru um kvótakerfið nú, að hugsanlegt sé, að þær gangi ekki það langt, að gjaldið sé ekki svo hátt, að það þyrfti einnig að beita kjarnfóðurgjaldi, m. a. til að ná skyn- samlegri takmörkun á framleiðslunni. 656 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.