Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 51

Freyr - 15.09.1978, Page 51
Væri auðveldara en menn vilja vera láta að greiða rekstrarlánin beint til bænda. láta. Og að það þurfi ekki að þreyta svo miklu, þó að menn geti í framkvæmdinni ráðstafað þessu eins og þeir helst kjósa. Eitt vil ég taka fram, að mér finnst það óréttlátt og trúi því varla, að það þurfi að setja fasteignaveð fyrir þessum rekstrarlánum. Mér fyndist þá eðlilegra, að það yrðu gefnir út trygg- ingarvíxlar með loforðum um innlegg, sem ætti að nægja sem trygging fyrir greiðslu þessara rekstrarlána, þegar afurðirnar eru lagðar inn. Ég held, að það sé rétt, að það komi skýrt fram, að ég álít, að ýmsir, sem hafa mælt á móti þessari tillögu okkar, þekki ekki þær aðstæður, sem við búum við í þessu efni. Ég get nefnt dæmi um þetta beinum orðum. Þannig er, að við, sem búum við ísafjarðardjúp, eða a. m. k. í mínum hreppi, við kaupum áburðinn beint frá Áburðar- verksmiðjunni. En á sama tíma hefur Kaupfélag Isfirð- inga leyfi til að taka rekstrarlán vegna framleiðslu okk- ar og getur farið með það fjármagn eins og það vill. Og þannig getur þetta verið í ýmsum tilfellum, að við erum sjálfir að kaupa inn ýmsar vörur, en það er viðkomandi kaupfélag, sem annað hvort verslar alls ekki með vör- una, eða við teljum ekki hagkvæmt að versla við það, sem hefur rekstrarlánin með höndum. Við felum að vísu kaupfélaginu að selja framleiðslu okkar, en það fær rekstrarlánin án þess að spyrja okkur nokkurn hlut um það. Engin offramleiðsla af búvörum á Vestfjörðum. Nú cr hluti af því, sem oft er tíundað sem rekstrarlán til landbúnaðarins, lán til Áburðarverksmiðju ríkisins, svo að hún geti lánað áburðinn. Njótið þið þess ekki? Jú, við fáum greiðslufrest á áburðinum, en hann er ekki eins mikill eins og afurðasölufélögin hafa, hann er styttri hjá okkur en þeim. Það er þekkt, að þið fulltrúar Vestfirðinga hafið lagst meira á móti fóðurbœtisskatti en fulltrúar úr öðrum landshlutum. Hver er ástœðan fyrir því að þínu mati? Ég þori nú ekki að svara fyrir alla heldur lýsi minni skoðun. En ég tel, að óánægja okkar stafi mikið af því, að það hefur aldrei verið tekið undir þær óskir okkar að koma á verðjöfnun á fóðurbæti, og má þó vel vera, að þetta sé nú ekki aðalorsökin fyrir því, að við leggj- umst yfirleitt fast gegn fóðurbætisskatti. En hitt er líka, að við teljum, að það sé engin offramleiðsla á búvörum á Vestfjörðum. Þvert á móti þá vantar þar búvörur. Það er að vísu flutt kjöt á markaðinn hér syðra, en aftur F R E Y R 661

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.