Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 52

Freyr - 15.09.1978, Page 52
Höfum takmarkaSa ræktunarmöguleika en góð beitilönd. á móti eru líka fluttar unnar kjötvörur til Vestfjarða. Eins teljum við, að við hljótum að eiga hlutdeild í stóra markaðnum í Reykjavík eins og aðrir bændur landsins, og að við höfum rétt á að flytja a. m. k. eitthvert magn þangað, án þess að það sé talað um offramleiðslu hjá okkur. Þar af leiðandi teljum við, að framleiðslutak- markanir eigi fyrst og fremst að koma niður á þeim svæðum á landinu, sem offramleiðslan er á, og líka þar, sem ofbeit er viðurkennd, en ég tel enga ofbeit vera á Vestfjörðum. Þá má einnig benda á, að við höfum ekki ræktunarskilyrði til jafns við beitarmöguleikana. Þann- ig getur verið hagkvæmt að hafa sauðfé hjá okkur — við höfum góða sumarhaga — þannig að við getum feng- ið góðar afurðir af sauðfénu með því að gefa ákveðið magn af fóðurbæti. En ég vil alls ekki viðurkenna það, að það hafi verið gefinn fóðurbætir í óhófi þar, sem ég þekki til á Vestfjörðum. Óeðlilegt að við séum að samþykkja á okkur skatt á rekstrarvörur á sama tíma og við berjumst fyrir niðurgreiðslu á þeim. Nú fáið þið Vestfirðingar alveg sama verðjöfnunar- gjald á framleiðslu ykkar eins og aðrir bændur landsins þrátt fyrir þá sérstöðu, sem þið teljið ykkur hafa og þú hefur lýst, ef þetta er tekið í formi verðjöfnunargjalds eins og nú er gert. Finnst ykkur, að fóðurbætisskattur komi verr við ykkur en verðjöfnunargjaldið? Það liggur ljóst fyrir, eins og er, þá er það verðjöfn- unargjald, sem við verðum við að búa. En ég tel, að með því að leggja á fóðurbætisskatt, þá sé jafnvel verið að fela vandann og hann komi ekki eins fram. Eg held, að það sé alveg eins hollt, að bændur sjái fram á það, hvert vandamálið er, og að það komi beint að greiða þetta í formi verðjöfnunargjalds. Hitt er náttúrlega reiknings- dæmi, hvort bændur á Vestfjörðum greiða meira með því móti, að tekið sé verðjöfnunargjald heldur en ef fóðurbætisskattur væri lagður á. En hitt er að mínu mati ákaflega óeðlilegt, að við séum að samþykkja á okkur skatt af þessu tagi á sama tíma og sú stefna hefur verið uppi hjá Stéttarsamband- inu og það barist fyrir því, að rekstrarvörur séu greidd- ar niður. — Það er, að niðurgreiðslur komi á framleiðslu- stigi. — Þetta finnst mér stangast á. Eins vil ég minna á, að þetta getur verið tímabundið, hve lengi fóðurbætir er ódýr, og hræddur er ég um það, ef fóðurbætisskattur er settur á einu sinni, þá verði hann ekki tekinn af um ófyrirsjáanlega framtíð, og jafnvel að hann yrði í framtíðinni notaður sem tekjustofn á víð- tækari hátt en nú er rætt um. Því tel ég mjög varasamt að opna þennan möguleika. 662 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.