Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 55

Freyr - 15.09.1978, Page 55
Hér eru fluttar fróðlegar skýrslur og gott yfirlit fæst yfir stöðu málanna. Búnaðarsamböndin eru í reynd tengiliður Stéttarsambands og hinna almennu bænda. Hvað jinnst þér svo um störf fundarins? Hingað kemur mjög mikill fjöldi tillagna frá einstök- um búnaðarfélögum, búnaðarsamböndum og öðrum fundum bænda eins og kaupfélagsfundum. Það er ljóst, þegar svo margar tillögur liggja fyrir, að það þarf að gefa sér tíma til að vinna eitthvað úr því, svo að vel fari. Margar tillögurnar hníga í sömu átt, þannig að fjöldi þeirra segir ekki til um fjölda málefna, enda er það ofureðlilegt, því að ekki vita þessir fundir hver um annars gerðir. Til þess, að þetta verði vel úr garði gert og það, sem kemur frá fundinum, sé marktækt, hlýtur að þurfa að samræma þetta verulega. Hér eru einnig fluttar ákaflega fróðlegar skýrslur, sem gefa gott yfirlit yfir stöðu málanna. Það má um það deila, hvað verja á miklu af tíma fundarins til skýrslu- gerðar. En frá mínu sjónarmiði sem nýliða, þá er farinn þarna hóflegur vegur. Nú eru fundunum víst ekki sett föst tímamörk og mér þykir sýnt, að hann verði töluvert fram á þriðja daginn. Og það er erfitt að hafa svona fjölmennan fund lengri. Þér finnst þá ekki óeðlilegt, að Stéttarsambandsfund- ur standi i 2—3 daga, en Búnaðarþing í 2—3 vikur? Það er sjálfsagt ekki allt fengið með tímalengdinni. Stéttarlega hliðin þarf auðvitað sína umfjöllun. Hins vegar hjálpar það sjálfsagt, ef fulltrúar hafa möguleika til að búa sig undir fundina varðandi þau málefni, sem vitað er, að tekin verða fyrir. Sigurður Þórólfsson var sóttur inn á fund laganefndar, þar sem hún var að ræða um breytingar á lögum Stéttar- sambandsins. Um hvað snerust umræður ykkar, Sigurður? Það voru í fyrsta lagi tillögur um breytta tilhögun á kosningum á fulltrúum til Stéttarsambandsfundarins. Rætt er um að breyta þeim þannig, að þær verði annað hvort færðar til almennra bændafunda eða þá kosning verði almenn. En við þarna í laganefndinni sáum nú ekki, að auð- velt væri að koma á einu fyrirkomulagi yfir allt landið, sem örugglega væri breyting til batnaðar, F R E Y R 665

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.