Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1978, Page 59

Freyr - 15.09.1978, Page 59
Orlofsmálið virðist verða að bíða, en allir virðast telja nauðsynlegt að koma á forfallaþjónustu. Teljum að ekki eigi að blanda annarri ull í íslensku ullina. orlofssjóður. Það komu fram andmæli gegn því við könnun, sem gerð var fyrir nokkru, og virtust menn heldur vilja vera frjálsir að því, hvernig þeir verðu því orlofsfé, sem þeim er reiknað í grundvellinum. En í sambandi við forfallaþjónustuna, þá virðist, að allir telji nauðsynlegt að koma henni á. Ef þetta frum- varp yrði að lögum og menn fengjust til að sinna þessu í sveitunum, gætu bændur hringt í þessa menn og fengið þá í allt að 28 daga, ef forföll eru, og meðan verið er að finna aðra lausn. Þetta er hugsað þannig, að það verði borið uppi af ríki og sveitarfélögum. Síðan er málið hugsað þannig, að fyrir ákveðinn fjölda bænda verði ráðinn afleysinga- maður. Það gæti og þyrfti helst að vera maður eða menn búsettir í sveitunum. Hann gæti t. d. verið aðili að fé- lagsbúi eða maður, sem á annan hátt væri tiltækur, þeg- ar á þyrfti að halda. Þetta gæti í tilfellum verið auka- vinna. en þá yrðu það fleiri, sem gegndu störfum þessum. Annað mál, sem við vorum að fjalla um og mér finnst ástæða til að geta um, er varðandi útflutning á ullinni. Við erum mjög óhressir yfir ullarútflutningnum. En þannig er það, að samkvæmt íslenskum lögum getum við ekki haft nein áhrif á innflutning á ull. Eftir að við gengum í EFTA, þá erum við skyldir til að leyfa hann. En við viljum sporna við útflutningi á bandi, sem svo veldur fyrirtækjum okkar erfiðleikum með að vinna úr ullinni. Við teljum, að það eigi helst ekki að blanda annarri ull í íslensku ullina. Það teljum við, að geti orðið til að skaða álit á íslenskum ullarvörum erlendis. Þær ætti að kynna sem vörur úr hreinni, íslenskri ull, unnar á íslandi. Því viljum við gefa stjórn Stéttarsam- bandsins heimild til að láta hanna merki til að merkja íslenskar ullarvörur og kynna þær undir því merki er- lendis. Þessi mál verður að reka með framtíðarsjónar- mið í huga, þó að það kunni að vera stundargróði að þessum útflutningi á ullarbandi eða lopa og að íblöndun í ullina, getur það að okkar dómi skaðað framtíðina. Fleiri mál, sem allsherjarnefnd fjallar um, sem þú vilt nefna? Ég má ekki gleyma því, að við höfum til meðferðar tillögu varðandi fæðingarorlof húsmæðra. Þar viljum við marka þá stefnu, að það verði sett ein heildarlöggjöf um fæðingarorlof allra kvenna, þannig að allar sitji sem mest við sama borð og hafi sama orlof. Við vitum að vísu, að ríkisstarfsmenn gefa ekki eftir sitt þriggja mán- aða orlof. F R E Y R 669

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.