Freyr

Årgang

Freyr - 15.09.1978, Side 75

Freyr - 15.09.1978, Side 75
verður oft mjög áberandi, þegar á líður sjúkdóminn. Stundum fylgir riðunni ákafur kláði, einkum er þetta áberandi á þeim stöðum, þar sem sjúkdómurinn hefur náð fótfestu hin síðari ár. Sést þá oft, að kiridin er að reyna að klóra sér með hornunum, og síðar fer hún að aka sér upp við staura, veggi og stoðir, viðþolslaus af kláða. Stund- um sést riðusjúklingur naga eða sleikja fæturna í sífeiíu vegna kláðans. Þó að riðukindur hafi góða lyst og séu oft venju fremur þorstlátar, horast þær samt og rýrna jafní og þétt. Riðusjúklingar virðast hafa fulla tilfinningu og skynjun til hins síðasta. Þegar líður á sjúkdóminn, missir kindin þrótt, getur ekki gengið nema stuttan spöl í einu og iiggur mikið fyrir. Jafnframt missir hún vald yfir hreyfingum og getur ekki stað- ig upp hjálparlaust, og er þess þá sjaldan langt að bíða, að yfir Ijúki. Riðusjúklingar á síðustu stigum veikinnar eru hin mesta hryggðarmynd og sjúkdómsþrautir án efa miklar, enda munu þá flestir grípa til byss- unnar til að binda enda á kvalir þessara vesalinga. Mjög er það misjafnt, hve riða er lengi að leggja sjúklinginn að velli, eftir að fyrstu einkenni koma í Ijós. Veldur þar mestu, hvernig ástæður eru, geldfé þraukar oft í nokkra mánuði, lambfullar eða nýbornar ær mun skemur, vart meir en 3—4 vikur. Tjón af völdum veikinnar. Þegar riðuveiki kemur upp í fjárbúi, veikjast venjulega fáar kindur fyrstu árin, og getur svo gengið árum saman. Oft færist veikin þó í aukana, er frá líður, en hjaðnar svo á ný. í stöku tilfellum getur tjón af völdum veikinnar orðið mjög mikið, og þess eru dæmi, að 20—30% af fjárstofninum hafi farist á einu ári af riðuveiki. Stundum virðist eins konar hópsmitun hafa átt sér stað, þar sem heilir árgangar að kalla í hjörðum falla um svipað leyti úr riðu. Oftast eru það kind- ur á besta aldri, sem veikjast, og óbeint tjón vegna varnaragerða og óþæginda í því sarnbandi eru oft töluverð. Ekki munu þess nein dæmi, að kindur, sem veikst hafi af riðuveiki, nái bata. Sjúklegar breytingar. Við krufningu á riðukindum sjást engar sjúklegar breytingar að kalla. Við smásjár- skoðun finnast sérkennilegar hrömunar- breytingar í iaugafrumum, einkum í mænu, mænukólíi og heila, og koma breytingar þessar að gagni til að greina sjúkdóminn oft á tíðum. Hins vegar finnast ekki eigin- legar bólgubreytingar í miðtaugakerfi úr riðusjúklingum. Sjúkdómsorsök og ferill sjúkdómsins. Orsök riðuveiki er talin vera örsmá veira, sem á margan hátt er frábrugðin venjuleg- um veirum. Ekki hefur enn tekist að rækta veiru þessa í vefjafrumum eða greina hana í rafsjá, svo öruggt sé. Viðnámsþróttur þessarar veiru er með ólíkindum, virðist hún þola suðu, og ýmis sótthreinsunarefni, sem eyða venjulegum veirum, hafa ekki nein teljandi áhrif á riðuveirur. Gerir þetta að sjálfsögðu allar sóttvarnarráðstafanir gegn þessum sjúkdómi örðugar. Ekki er vitað til, að riðuveiki hafi fundist hér á landi í öðrum dýrategundum en sauð- fé. Riðuveiki virðist vera sami eða mjög náskyldur sjúkdómi þeim í sauðfé, sem nefndur er scrapie og þekktur er í mörgum sauðfjárræktarlöndum, bæði í sauðfé og geitfé. Með sýkingartilraunum er hægt að flytja sjúkdóm þennan í ýmis tilraunadýr, t.d. mýs, rottur, hamstra og ýmsar tegundir smáapa. Samt hefur ekki tekist að sýna fram á, að riða eða scrapie leynist í þessum dýrategundum, þar sem þær eru í eðlilegu umhverfi sínu. Þegar heilbrigðar kindur eru sýktar með sýkingarefni úr veikum kindum, líða 8—32 mánuðir, þar ti! riðueinkenni koma fram, F R E Y R 685

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.