Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.2000, Qupperneq 11

Freyr - 01.12.2000, Qupperneq 11
ég hef sagt það sl. tvö ár að ef menn geti ekki búið þá eigi þeir að hætta og fara í eitthvað annað, meðan gott verð er í framleiðsluréttinum. Þetta held ég að gildi um land allt. Það er hins vegar rnjög breytilegt eftir héruðum hvernig þjónustustig- ið er sem og „mórallinn“. Hér í Skagafirði er t.d. mjög sterkur fé- lagsskapur kringum bæði sauðfjár- ræktina og mjólkurframleiðsluna, þ.e. félög sauðfjárbænda og kúa- bænda, þetta eru áhugasöm og virk félög. Eg er í stjórn Félags sauðfjár- bænda í Skagafirði og við hittumst alltaf einu sinni í mánuði og á vet- urna höldum við fundi í sveitunum. En það er ekki nóg að hafa þolan- lega afkomu, ef félagslegi þátturinn er ekki í lagi, þá líður fólki ekki vel. Er ekki lítið um hrein fjárbú he'r í sýslu? Jú, þau eru fá, en sjáðu til, sauð- fjárrækt á Islandi í dag er hobbí, þessi grein hefur orðið á eftir í þró- uninni, það eru alltof margir að framleiða of lítið kjöt til þess að það geti verið hagkvæmur sjálf- stæður rekstur. Sauðfjárrækt er hins vegar frábær hliðarbúgrein til að nýta þá aðstöðu sem er fyrir hendi, beit, hús og annað. Ég vil að sem flestir eigi sauðfé en tel óraunsætt að unnt sé að reka hana sem eina lifibrauðið. En nú eru til svœði þar sem litlar sem engar aðrar tekjur er að hafa. Já, þar verða menn að leysa málin út frá sínum forsendum. En það þýð- ir ekkert að sitja bara heima og kvarta, menn verða að sækja sjálftr á. Hross, ímynd Skagafjarðar, Svo er það ímynd Skagafjarðar, hrossin. Hvernig gengur að stunda hrossarœkt með öðrum búskap? Ég ætla ekki að setjast í dómara- sæti yfir því. Mér finnst hins vegar alveg frábært hve mikill áhugi er á hrossarækt, tamningum og hesta- mennsku hér í sýslunni vegna þess að þetta er skemmtilegt, bæði sem sport og eins sem rekstur en það vantar örugglega talsvert á að þetta gefi það trygga afkomu að þetta sé spennandi sem búgrein fyrir þá sem hafa ekki brennandi áhuga á henni. Það er þó ljóst að nokkur hópur manna hér í Skagafirði lifir alveg af þessu. En er þetta búgrein með öðrum búgreinum eða er hœgt að lifa af henni einni? Ég tel að þetta sé álitlegast sem aukabúgrein, en þá verður líka að gæta þess að hún ýti ekki til hliðar því sem menn lifa af, en það er ekk- ert leyndarmál að það gerist sums staðar. Hrossin taka þá allan áhug- ann og allan tímann og annað situr á hakanum. Þetta á alls ekki við um alla og sumir selja góð kynbótahross fyrir hátt verð en þó ekki á hverju ári. Annars virðist lífhrossamarkaður- inn vera þröngur um þessar mundir. Varðandi þá bjartsýni sem ríkir í búskapnum hér í sýslu þá tel ég að sú ákvörðun Kaupfélags Skagfirð- inga að hjálpa kúabændum að kaupa kvóta eigi þar verulegan hlut að máli. Ég skil reyndar ekki af hverju fyrirtæki í landbúnaði í öðr- um héruðum gerðu þetta ekki líka. Þetta er hins vegar tvímælalaust besta sóknarfæri sem KS hefur skapað sér og gjörbreytir ímynd þess gagnvart bændum. Það er mikið talað um það nú að sameina þurfi mjólkurbú og slátur- hús, ert þú fylgjandi því? Já, ég hef alltaf verið það, en þessi stækkun og sérhæfmg á að byggjast á því að fólk vinni saman, en það vantar t.d. mikið á það að ís- lenskur mjólkuriðnaður vinni sam- an. Það á að sérhæfa mjólkursam- lögin, og fækka framleiðslulínum hjá hverju þeirra. Það má pakka neyslumjólk alls staðar, það kostar lítið, en að framleiða jógúrt með sömu bragðefnum hlið við hlið, eða súrmjólk eða annað, það á ekki að eiga sér stað. Sláturhúsin? Alveg það sama, það er ekkert mál að slátra hvar sem er, það eru sölumálin sem brýtur á, þau eru stærsta vandamál sauðfjárræktar- innar þar sem hvert fyrirtækið treð- ur skóinn niður af öðru, bæði á inn- lendum markaði og erlendis. M.E. Fjórði hver nýr mjólkurframleiðandi í Danmörku er Hollendingur Frá árinu 1997 hefur hlutfall mjólkurframleiðenda af hollensk- um uppruna, sem hefja búskap í Danmörku, vaxið úr 10% í 20- 25%. Hollendingarnir sækjast einkum eftir bújörðum með stór- um áhöfnum. Hlutur þeirra í mjólkurframleiðslu í Danmörku er því enn meiri en fjöldi þeirra segir til um. Hinn 1. ágúst sl. voru hollenskir kúabændur um 350 - 400. Þetta kom nýlega fram í svari Ritt Bjerregaard, landbún- aðar- og matvælaráðherra Dana, í Folketinget. (Landsbladet nr. 46/2000). Aukin fúkkalyfja- notkun í Danmörku Utgjöld vegna kaupa á fúkkalyij- um í dönskum landbúnaði hafa aukist mikið á þessu ári. Fyrstu átta mánuði ársins keyptu danskir bændur fúkkalyf fyrir 56 millj. dkr. en fyrir 32 millj. dkr. á sama tíma árið áður. Aukningin var mest í svínarækt og ástæða hennar er einkum talin sú að frá síðustu ára- mótum var bannað að nota vaxt- araukandi efni í smágrísauppeldi. (Bondebladet nr. 45/2000). FREYR 11-12/2000 - 11

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.