Freyr - 01.12.2000, Page 19
Aldur við burð og
burðartími hjá fyrsta kálfs kvígum
Endurnýjun kúastofnsins er
einn af stærri kostnaðarþátt-
um í mjólkurframleiðslunni.
Um leið er burðartími kúnna og þá
sérstaklega hjá fyrsta kálfs kvígum
einn af þeim stjórnþáttum sem
bóndinn hefur við skipulagningu á
framleiðslu sinni.
I nágrannalöndunum hefur síð-
ustu misserin mátt lesa margt um
þróun í þessum efnum þar. Varað er
við öfugþróun í sumum löndum
vegna þess að kvígurnar séu jafnvel
að verða eldri en áður þegar þær
bera fyrsta sinni. Einnig hefur end-
umýjunarkostnaður farið vaxandi í
mjólkurframleiðslunni vegna þess
að frálagsvirði kúnna hefur lækkað
hlutfallslega vegna lækkunar á
verði kýrkjöts.
Fyrir tveim áratugum, þegar við
vorum að meta leiðréttingarstuðla
vegna áhrifa aldurs og burðartíma
kúnna á afurðir, voru gerðar ýmsar
rannsóknir sem sýndu glöggt stöðu
mála á þeim árum. Þá var meðal-
aldur fyrsta kálfs kvígnana við burð
um 26 mánuðir en meginhluti
þeirra bar á aldrinum 24-28 mán-
aða, en alltaf voru til bú þar sem
kvígurnar báru við þriggja ára ald-
ur. Burðartími þeirra var hins vegar
mjög dreifður yfir allt árið og eins
og hjá öðrum kúm á þeim árum
báru hlutfallslega flestar kvígumar
að vorinu þó að hlutfall þeirra sem
bar að haustinu væri heldur hærra
en hjá fullorðnu kúnum. Þá mátti
orðið fmna nokkur bú á Suðurlandi
þar sem kvígumar báru nánast allar
að haustinu, en slíkt var að heita
mátti óþekkt í öðrum landshlutum.
Ljóst var að aldur og þroski kvígn-
anna réð mestu um burðaraldur
þeirra á þessum ámm.
Til að bregða ljósi á þróun í þess-
um efnum voru teknar til úrvinnslu
upplýsingar fyrir allar kvígur, sem
eftir éF\
Jón Viðar
Jónmundson,
Bænda- V
samtökum f v
íslands
báru fyrsta kálfi, og upplýsingar
vom um í skýrsluhaldi nautgripa-
ræktarfélaganna fyrir árin 1991-
1998. Þetta voru samtals nær 42
þúsund kvígur. Hér á eftir verður
gerð grein fyrir því helsta sem fram
kemur við skoðun á þessum upp-
lýsingum.
Aldur við burð
A mynd 1 em sýndar niðurstöður
um þróun í aldri kvígnanna við
burð á þessu tímabili. Þar sést
glöggt að burðaraldur kvígnanna
verður að jafnaði hærri með hverju
ári. Árið 1991 vom þær 28,4 mán-
aða að jafnaði en árið 1998 er aldur
kvígnanna kominn í 29,5 mánuði
að meðaltali. Þegar þessar tölur eru
bomar saman við eldri upplýsingar,
sem áður eru nefndar, er ljóst að
Mynd 1, sjá texta.
Meðalaldur eftir burðarmánuðum
Mynd 2, sjá texta.
FREYR 11-12/2000 - 19