Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.2000, Blaðsíða 40

Freyr - 01.12.2000, Blaðsíða 40
.©— 5 ár —h—10 á r —e—15 ár —x—20ár —5 ár —h—10 ár —e—15 ár —20ár 4. mynd. Áhrif mismunandi kjarnfóðurverðs á framlag fóðurs, 35 kr./kg til vinstri, 25 kr./kg til hœgri. nýting fasts kostnaðar en rauntölur úr íslenskum landbúnaði gefa ekk- ert slíkt til kynna. Umræöur Ýmislegt bendir til þess að að hagkvæmasta jarðræktarskipulag hverju sinni tengist afurðastigi bús- ins og burðartímaskipulagi. Ljóst er að aðrar kröfur verður að gera til fóðurs ef mestur hluti þess er við- haldsfóður heldur en ef það er nýtt til afurðaframleiðslu. Samkvæmt þessu ættu bændur að haga skipu- lagi jarðræktar þannig að það falli að framleislumarkmiðum búsins eða jafnvel að haga framleiðslu búsins eftir aðstæðum til jarðrækt- ar. Ljóst er að húsakostur og önnur aðstaða hafa þama mikil áhrif sem ekki er hægt að taka tillit til í al- mennum útreikningum. Takmark- að ræktunarland getur einnig sett skipulagi framleiðslunnar skorður og í slíkum tilfellum getur verið æskilegra að hámarka fóðurfram- lagið á einingu ræktaðs lands frekar en á innlagðan lítra mjólkur. Þar sem básafjöldi í fjósi er takmark- andi er ennfremur eðlilegra að miða framleiðsluna við hámörkun fram- lags á mjólkurkú. Innan þess ramma, sem framleiðsluaðstaða og ræktun setja hverjum bónda, ætti hins vegar að miða við að hámarka framlagið á innlagðan lítra en þá þarf að huga að þeim þáttum sem ekki eru teknir með í reikninga á fóðurframlagi. í útreikningum á fóðurframlagi hér að ofan kemur í ljós svipað mynstur og ítrekað hefur birst í bú- reikningum Hagjónustu landbúnað- arins varðandi framlegð á kúabú- um. Ljóst er að með hækkandi af- urðastigi eykst fóðurframlag á hverja mjólkurkú og samfara því sparast töluvert ræktarland þar sem lægra hlutfall heildarfóðurs er við- haldsfóður. Fóðurframlag hverju sinni vex hins vegar ekki, heldur er nokkuð stöðugt, en nær hámarki við ákveðið afurðastig sem virðist háð burðartímaskipulagi og sláttu- tíma- og endurræktunarskipulagi. Akvörðun á hagkvæmasta sláttu- tíma verður að taka með tilliti til afurðastigs og endurræktunartíðni. Við miðlungshátt og hærra afurða- stig ætti að leggja áherslu á snemm- slátt, að meðaltali ekki seinna en um skrið vallarfoxgrass, þetta á einnig við í öllum tilfellum ef um haustburð er að ræða. Við lægra af- 1.500.000 kr. urðastig og jafnan burðartíma eða vorburð mætti slá að jafnaði nokkru seinna, eða viku til tíu dögum eftir skrið vallarfoxgrass, en í slíkum til- fellum má gera ráð fyrir því að sláttur gæti hafist að jafnaði um skrið vallarfoxgrass. Nú verður að taka fram að ákvarðanir um slátt ráðast ekki ein- ungis að sprettu og þroska grasa heldur einnig af veðurfari. Því eru ofannefndar tímasetningar einungis leiðbeinandi. Svipað á við um end- urræktunartíðni að eftir því sem kröfumar em meiri til fóðursins, hátt afurðastig og haustburður þá eykst hagkvæmni endurræktunar- innar og segja má með nokkurri vissu að tiltölulega ör endurræktun á 8-12 ára fresti borgi sig í flestum tilfellum ef um er að ræða miðl- ungshátt eða hærra afurðastig á kúabúum. Við lægra afurðastig em samspilsáhrif sláttutíma og endur- ræktunartíðni á þann veg að með 1.250.000 kr. 1.000.000 kr. 750.000 kr. 500.000 kr. 250.000 kr. - kr. 0 50000 100000 150000 200000 Innvegnir mjólkurlítrar 5. mynd. Samband afskrifta véla og innveginna mjólkurlítra skv. Búreikning- um Hagþjónustu landbúnaðarins 1999. y = 7,2x - 24 R2 = 0,97 40- FREYR 11-12/2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.