Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1912, Page 7

Sameiningin - 01.02.1912, Page 7
359 ai* dýrðar g*uðs, sjá lítið af dýrð lians. Þeir missa sjón- ar á því, sem aðal-atriðið er. Hann lifði guði til dýrð- ar af því liann með lífi sínu öllu og anda sínum opin- beraði náð guðs. Hann kom til þess að snúa mönnun- um til guðs og gjöra þá að nýjum mönnum, er gæfi guði dýrðina, og líf þeirra að nýju lífi, er opinberaði dýrð guðs. Með Jesú Kristi er nýtt lífsafi komið í lieiminn og er í lieiminum, kraftr náðar guðs til banda öllum, sem trúa vilja á Jesúm Krist. Þeir allir, sem lilutdeild fá í því lífsafli, fá löngun til þess að gefa guði dýrðina. í þeim lifir Jesús guði til dýrðar. Fyrir Jesúm Krist kappkosta þeir að lifa guði til dýrðar. Þeir vita, að allt gott, sem þeir gjöra, og öll blessan, sem frá þeim kemr, er guði að þakka, náð lians einskærri og óverð- skuldaðri. A sig vilja þeir ekki að sé bent, nema til þess að benda á dýrð náðar guðs við syndugan mann. Því Soli Deo tíloria, guði einum sé dýrðin, er einkunnar- orð þeirra. Ekki af því, að þeir hafi lært það og vilji nú sýna sjálfa sig, heldr af því það lýsir því, sem býr í hjarta þeirra. Öll könnumst vér við söguna um þá tíu líkþráu menn, sem Jesús læknaði. Aðeins einn þeirra sneri aftr, lofaði guð með hárri raust og féll til fóta Jesú, og þakkaði honum. Þá sagði Jesris: Urðu ekki þeir tíu hreinir ? Hvar eru þeir níu? Yoru engir, sem sneru aftr til ])ess að gefa guði dýrðina, nema þessi útlend- ingr? (Lúk. 17, 11-19). Það tók á liann að sjá, að hjálp lians hefði komið aðeins einum til þess að gefa guði dýrðina — hann, sem vildi koma öllum til þess, er nutu hjálpar hans, einsog saga þessi sýnir svo vel. Kunnug mun líka önnur saga vera irr Gjörðahók postulanna, þótt líklega sé ekki eins kunn. Hún er um Heródes Agrippa konung fyrsta, sonar-son Heródesar mikla (,,barnamorðingja“), sem rappi var, þegar Jesús fœddist, en bróðurson Heródesar Antípas, sem kernr við píslarsögu frelsarans. Yið tœldfœri eitt, sem frá er sagt, klæddist hann konungsskrúða, settist í hásætið og liélt rœðu. Lýðrinn, sem hlustaði á, annaðhvort af því

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.