Sameiningin - 01.02.1912, Blaðsíða 16
368
MÓTMÆLI.
Með því aS enginn af leikmönnum, svo eg til viti, hefir
mótmælt greinum þeim, sem birzt hafa í „Breiðablikum" viS-
vikjandi œskufrásögunum í guðspjöllunum, um fœðing- Krists,
þá finn eg mér í alla staði skylt aö mótmæla slíkum nýmælum.
Og eg veit ekki, hvernig unnt er að samríma slíkar staðhœfing-
ar heilbrigðum lúterskum kristindómi; og eg er alveg viss um,
að sá gTundvöllr verðr ekki traustari fyrir nú,tíð og framtíð,
sem „Breiðablik" virðast vilja að menn byggi trú sína á. en sá
grundvöllr, sem lag'ðr var af Kristi sjálfum og postulum hans.
Á þann gnmdvöll var mér kennt að byggja minn kristindóm, og
vil eg því af einlægu hjarta biðja frelsara minn og drottin, guðs
eingetinn son Jiesúm Krist, að sitja í stafni á hinu veika lifs-
fleyi mínu og stýra því framhjá skerjum mannlegs hroka og
stœrilætis, er of mjög virðist einkenna sutna af þeim mönnum,
sem sýnast sérstaklega vera kallaðir til að vera ljós á vegi hinna
veiku. Það skal því verða tekið hér fram, að enga tilhneiging
hefi eg til þess að bergja á því nýja víni, sem kand. Magnús
Jónsson virðist rétta að mönnum gegnum Júlí- Ágúst- og Októ-
ber-blöð ,,Breiðablika“. Nei; eg vil heldr það gamla, sem Kristr
tilreiddi handa mér, og ef eg neyti þess og læt það hafa þau á-
hrif á innra og ytra líf mitt, sem frelsari minn Jesús Kristr ætl-
aðist til, þá. er eg vongóðr um. að hinn miskunnsami Samverji
geti fyrr eða síðar komið fram i lífi mínu.
En á einu furöar mig mest, að séra Er. J. Bergmann virðist
vera hugfanginn af ritsmíð kand. Magnúsar Jónssonar og telr
vísit, að þau erindi hafi verið flutt í þeim tilgangi. að styðja
veikar sálir í trúnni; og getr það nú Jfrá vissu sjónarmiðij átt
við sannleik að stvðjast. En mvndi ekki séra Fr. J. Bergmann
fyrir 15 árum hafa þótt það nokkuð gáskalega stigið fram-á rit-
völlinn innan lúterskrar kirkju?
Mér blandast þvi ekki hugr um það, að ef meiri hluti á
kirkjuþingi 1909, sem hélt fast við síefnu hinnar lútersku
kirkju, hefði svarizt í fóstbrœðralag við hina nýju stefnu ýþ. e.
a. s,: ef hún var þá einsog mér virðist hún nú í seinni tíð hafa
komið í ljósj. þá hefði að öllum líkindium s;á kirkjulegi félag-
skapr orðið slíkt andlegt öfugstreymi, sem eg hefði ekki kært
mig um að berast út-í.
Þessvegna finnst mér vera kominn timi ,til. að þeir. sem
ekki eru að öllu leyti ánœgðir með þá trúmálastefnu. er í seinni
tíð hefir birzt í „Breiðablikum''. segi algjÆega skilið við hana.
að svo miklu leyti sem menn hafa beinlínis eða óbeinlínis léð
henni fvlgi sitt.
Edinburg. N.-Dak., í Eebrúar 1912.
Þórfir Sigmundsson.