Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1912, Síða 37

Sameiningin - 01.02.1912, Síða 37
389 Upp legubekkinn, er hann gat enn síör án veriö en skeggs- ins, sem breiddi sig yfir brjóst hans, silfrhvítt einsog á Aron. Þær bjuggu til grind, er í laginu var ferhyrningr, sem eina hliöina vantaöi í, en þaö var þeim-megin, er vissi útaö dyrum; huldu þær svo grind þessa aö ofan með sessum og aö framan meS ábreiðum, en yfir sessurnar var varpaö marglitum dúkum, röndóttum, mórauöum og gul- um; í hornin létu þær kodda og svæfla meS bláum og fagr- rauðum verum; síðan lögðu þær umhverfis legubekkinn rönd af gólf-ábreiö'u, og eins bjuggu þær um gólfið milli arm- anna á legubekknum; og er gólf-ábreiSan hafði veriö borin frá bekkjaropinu til dyratjaldsins, var verki þeirra lokið; en síöan biðu þær aftr þangað til húsbóndi hafði látið í Ijós velþóknan sina með verkiö. Þá var ekkert annaö eftir en aö koma meö krukkurnar og fylla þær vatni, og enn frernr að hengja upp skinnbelgina með araki í, þarsem þeir gæti verið við höndina; úr arakinu varð seinna drykkr sá, er nefndist lebcn. Ekki mvndi Araba hafa skilizt annað en að Ilderim hlvti að vera breði ánœgðr og örlátr, þarsem um hann fór eins vel og í tjaldi hans við tjörnina með hinu tæra vatni undir trjánum í Pálmagarðinum. Það var við dyrnar á tjaldinu, sem nú hefir verið lvst, að vér skildum við Ben Húr. Þjónar voru þar fyrir og biðu eftir skipunum herra síns. Einn þeirra tók af honum skóna; annar leysti þvengina í hinttm rómversku skórn Ben Húrs; þvínæst fœrðu þeir þá báða í ný utanhafnar-föt úr hvítu lini, í stað hinna rykugu, sem þeir voru í. „Gakk inn — í guðs nafni gakk inn og lát hvílast“ — mælti húsráðandi hjartanlega á mállýzku þeirri, er töluð var á torginu t Jerúsalem og gekk svo á undan innað legu- bekknum. „Hérna ætla eg að sitja“ — sagði hann næst og benti urn leið; — „og þarna er sæti fyrir komumann." Undir tók kona nokkur — fyrr meir ntyndi hún hafa verið nefnd ambátt —■ og hlóð liprlega upp koddunum og svæflunum, til þess að styðja mætti þar bökin við; síðan settust þeir á brún legubekkjarins, en með vatn var komið beint úr tjörninni og fœtr þeirra úr því laugaðir og síðan jterrðir með þurrkum. ,. ‘Góö matarlyst lofar löngu lífi!’ — svo hljóðar orðs- kvíðr einn, sem hjá oss tíðkast í eyöimörkinni" — mælti Ilderim, er hann næst tók til máls; brá hann um leið hendi utanum skeggið og greiddi það með hinum mjóu fingrum sínum; — „er matarlystin hjá þér í því lagi?“ „Ef eftir því rná fara, göfugi sjeik! þá ætti eg að

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.