Sameiningin - 01.02.1912, Page 48
400
í stjörnu-fyrirburöinum, heyrt leiöbeiningar-rödd hans,
verið um svo langt skeið og á svo yfirnáttúrlegan hátt
leiddr af anda hans ? og hvað myndi umtalsefni hans annað j
vera en það, er hann hafði verið kvaddr til að vitna um ?
FIMMTÁNDI KAPITULI.
Undran Ben Húrs.
Indæl eru einatt kvöldin í ljósaskiftunum, þá stuttu
stund, er loftið hvílir fjólublátt uppyfir mókand’i jörðinni;
en skuggarnir, sem fjöllin vörpuðu frá sér yfir Pálma-
garðinn um sólsetr, létu ekki eftir neitt slíkt bil milli dags
og nætr. Nóttin kom snemma og snöggt; og til þess að
vega upp-á móti nætrhúminu i tjaldinu þetta kvöld komu
þjónarnir með fjórar kertastikur úr látúni og settu þær
við hornin á borðinu. Á hverri kertastiku voru fjórar
álmur, og á hverri álmu silfrlampi með kveiktu Ijósi ásamt
keri meö viöarolíu-forða í. í nœgri og jafnvel skínandi
Ijósbirtu héldu þeir, sem í samsætinu voru, um leið og
þeir neyttu eftirmatarin's, samrœðunum áfram, og töluðu
á hinni sýrlenzku mállýzku, sem allt fólk kunni í þeirri
heimsátt.
Egyptinn sagði sögu sína um það, er þeir þrír fundust
í eyðimörkinni, og bar honum og sjeiknum saman mn, að
það hefði verið í Desember-mánuði, tuttugu og sjö árum
áðr, er hann og þeir félagar hans á flóttanum undan
Heródes komu að tjaldinu og beiddust þar hælis. A frá-
söguna var hlustað með frábærlega sterkum áhuga, og
jafnvel þjónarnir töfðu við, er þeir fengu tœkifœri, til
þess að heyra, hvernig allt hefði atvikazt. Ben Húr tók
tíðindunum einsog þeim manni hœfði, sem hlustar á opin-
beran, þá er mjög miklu máli skifti, fyrir gjörvallt mann-
kynið, og þó fvrir ekkert fólk fremr en ísraelslýð. í sál
hans var, einsog oss mun brátt verða ljóst, hugtak eitt að
ná fastákveðinni mynd, er fyrir sér átti að breyta lífs-
stefnu hans, ef ekki að ráða henni að öllu leyti.
Eftir þvi, sem lengra leið á söguna, fóru áhrif Balt-
hasars á hinn unga Gyðing vaxandi; og í sögulok var sú
tilfinning hans orðin dýpri en svo, að hann Ieyfði sér
nokkurn efa um að hún væri sönn; og í raun og veru var
nú ekkert, sem hann í því efni œskti sér, annað en ýmisleg
fullvissa, svo framarlega sem hún gat fengizt, eingöngu
þó að því er snerti afleiðingar hins undrsamlega atburðar.
Nú er hér er kornið í sögunni, þarf að koma tneð