Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1912, Síða 50

Sameiningin - 01.02.1912, Síða 50
402 uðust Messías höfSu þeir þa'ö fyrir satt, aö hin einstaldega þjóöernis-dýrö sín öll væri viö hann bundin; allir spá- mennirnir, sá fyrsti til hins síðasta í röð þeirra miklu kappa, höföu sagt fyrir komu hans; og aldrei varö hlé á útskýringum rabbína á því efni; svo haföi þaö veriö í lið- inni tíö og svo var enn; í samkundunum, í skólunum, í Musterinu, á föstutíðum og hátíöardögum, opinberlega og í einrúmi héldu kennendr þjóðarinnar stööugt áfram að flytja þennan boöskap og útþýöa hann, þangað til svo var var komið, aö allir afkomendr Abrahams, hvar sem þeir bárust fyrir, báru Messías með sér í voninni, og miöuöu í Dókstaflegum skilningi og meö ósveigjanlegum strangleik allt líf sitt viö þá von og löguðu það eftir henni. Eflaust skilst lesendum af því, er nú hefir verið tekið fram, að mikiö hafi Gvðingar sín á milli þráttaö um Messías; svo var þaö og í reyndinni; en ágreiningr sá snerist eingöngu um eitt atriöi, þaö, hvenær hann myndi koma. Það er hlutverk prédikara að rannsaka efrii boðskapar þess, er hann flytr ; höfundr verks þessa er hinsvegar að- eins að segja sögu, og til þess að hann fari ekki útfyrir þau takmörk, sem honum í því tilliti eru sett, þarf að geta skýringar þeirrar, sem hann kemr hér með, aðeins aö þvi leyti, sem hún snertir einn þátt í Messíasar-trúnni, þann er allt fólk hins útvalda lýðs var svo samhuga um, aö frábærri furöu gegnir: Öllum kom saman um það, aö hann ætti, er hann kœmi, aö v'eröa KONUNGR GYÐINGA — hinn iaröneski drottinn þeirra, keisarinn þeirra. Með þá — Gyðinga — vopnaöa fyrir verkfœri skyldi hann leggja jöröina undir sig, og síöan þeim til hagsmuna og í nafni guðs halda henni í skefjum allt til eilífðar. Á þessarri trúarundirstööu reistu Farísear eöa Sjálfstjórnar- mennirnir — síöara nafnið bendir fremr á þá sern stjórn- máiaflokk — í klaustrklefum Musterisins og umhverfis ölturu þess andlegt stórhýsi í voninni, sem hátt gnæfði yfir það, er Alexander Makedóna-konungr kom upp- Þaö, sem Alexander stofnaöi, náði útyfir jöröina, en hitt, er reis upp í htiga Farísea meöal Gyöinga, náöi einnig útyfir himininn. Er vér nú hverfum aftr til Ben Húrs, skal þess getiö, aö tvennt var í æfikjörum hans, sem haföi þaö í för meö sér, að hann varð tiltölulega litt móttœkilegr fyrir hin herðandi áhrif öfgatrúarinnar hjá löndum hans í flokki Farísea. Fyrst og fremst aðhylitist faðir hans, trú Saddúsea, sem að megin-stefnu til má nefna frjálslyndu mennina á þeirri tíð. Óákveðnar ímyndanir voru uppi þeirra á meðal,

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.