Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1912, Page 58

Sameiningin - 01.02.1912, Page 58
4io an hans viötöku, ef ekki börn þeirra Abrahams, Isaks og Jakobs? Því aö minnsta kosti aö kærleikanum til eru þar þc börn drottins. Væri eg beöinn aö leita hann upp, þá myndi eg vandlega rannsaka þorpin smá og stór í hlíðum fjallanna í Júdeu og Galíleu, sem vita mót austri (og ná niðrí Jórdan-dal. Þar er hann nú. Og nú seinast í kvöld — hugsum um það — hefir hann, standandi í þeim eöa þeim húsdyrum eða á einhverjum hólnum, séð sólina, er hún gekk undir, einum degi nær en í gær þeim tíma, er hann verðr ljós heimsins." Balthasar hætti nú með upplyftri hendi og bendandi með fingri sínum til Júdeu eða eitthvað í þá átt. Allir, sem á hann hlustuðu, einnig þjónarnir skilningsdaufu fyr- ir utan legubekkinn, urðu hrifnir af ákafanum, sem kom fram í orðum hans, og hrukku við svo sem þeir, er fyndi til þess, að guðdómshátignin sjálf hefði skyndilega birzt þar í tjaldinu. Og ekki dó tilfinning þessi út allt í einu; hver einstakr þeirra, er voru þar við borðið, sat um hríð hugsandi. Loks varð Ben Húr til þess að koma þeim öll- um útúr leiðslunni. „Mér dylst það ekki, göfugi Balthasar!“ — mælti hann—, „að þér hefir hlotnazt mikil náð og einstakleg. Það sé eg og, að þú ert sannarlega spekingr að viti. Ekki er það á minu valdi að skýra frá þvi, hve þakklátr eg em fyrir það, sem þú heíir sagt mér. Eg hefi fengið varúðarbending um, að miklir atburðir sé í vændum, og að láni fæ eg nokkuð af trú þinni. Gjörðu nú svo vel að bœta við þakklætis-skuld mína við þig með því að segja mér meira um köllun hans, sem þú bíðr eftir, hans, er eg einnig uppfrá þessu kvöldi mun bíða eftir svo sem hœfir trúuðum svni ísraels af Júda-kynkvísl. Þú sagðir, að hann ætti að vera frelsari; á hann ekki einnig að vera konungr Gyðinga?" „Sonr minn!“ — mælti Balthasar eins góðlátlega og liann átti að sér — „það, sem að drottinlegri tilætlan felst í embættisköllun hans, er enn leyndardómr í hjarta guðs. Allar mínar hugsanir um það efni eru undnar útúr orðum raddarinnar í sambandi við bœnina, sem með þeim var svarað. Eigum við að hreyfa við þeim aftr?“ „Þú ert kennarinn." „Það, sem raskaði ró minni“ — mælti Balthasar og talaði nú stillilega, er hann hóf mál sitt—, „það, sem hratt mér á stað til að gjörast prédikari í Alexandríu og í Nílár- þorpunum, — það, sem rak mig loks inní einveruna, þar- sem andinn fann mig, — það var niðrlægingar-ástand mannanna, sem að trúarætlan minni stafaði af því, að þeir

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.