Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1921, Side 10

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1921, Side 10
8 TÍMARIT I>JÖÐRÆKNLSFÉLAGS ISLENDINGA bað hann vanda kvæíSið betur; ella skyldi ihann 'hafa verra af. Karl tók því vel og byrjaði að fara með vísur þær, er heita þokuvísur. “Þoku Iýstr upp h:t eystra” o. s. frv. Þá brá svo v'ð að þoka varð í höllinni, og ágerð- ist, þar til er aldimt var orðið. Þá brýnir karl enn röddina og hefur upp síðasta kafla kvæðisins, sem kallað hefir verið Jarlsníð, og er sjálfsagt rammasta níð, sem nokkurntíma hefir verið kveðið, ef trúa má sögunni, því að það var svo magnað, segir sagan, að alt fór á ferð og flug, sem í höll- inni var. Vopnin, sem 'hirðmennirmr höfðu lagt af sér, fóru á kreik, þótt enginn maður hefði hönd á þeim, og varð svo mikill vopnáburður þarna í myrkrinu, að margir fengu sár af og sumir ibana. Jarlinn sat undir þessum ósköpum; honum leið illa, og að lok- um féll hann í öngvit. Þá þóttist Þor- Ieifur hafa nóg að gert, þagnaði og hvarf burtu úr höllinni. Tók þá að birta aftur, og hirðmenn fóru að ræsta höllina og stumra yfir jarli. Hann raknaði við, en rotnað var af honum hár og skegg, og óx aldrei aftur. Svo nær gekk honum níðið. Eg ætla ekki að segja ykkur meira af þessari sögu. Þið getið lesið hana fyllri og lengri í þættinum af Þorleifi jarlaskáld. Engum manni dettur nú í hug, að saga þessi sé sönn í þeim skilningi, að atiburðirnir hafi gerst alveg á þann hátt, sem sagan segir. Það er þjóð- sögublær á þessum söguþætti. En eng- inn sky'ldi þar fyrir kalla hana lyga- sögu. Honum hefir verið trúað af því, að hann kom að einhverju leyti heim við það, sem menn þóttust hafa reynt. Þjóðsögur eru yfirleitt ekki lygasögur, heldur nokkurskonar skáld- sögur. Sumum finst það nú vera hið sama, kalla skáldskapinn lygi, og lyg- ina skáldskap. En það er rangmæli og af vanþekkingu sprottið. Ekkert er rétt nefndur skáldskapur, nema það hafi einhvern sannleika að geyma. En sannleikurinn í skáldskap og þjóðsög- um kemur stundum fram í dularklæð- um. Hann er ekki lagður fram fyrir augu okkar ber og nakinn, helaur er yfir hann breidd einhvei blæja, svo að reyna verður á skarpskygnina, tii þess að koma auga á hann. Á þann hátt verður oft fullt svo áhrifamikið það sem sagt er, ef nokkuð verður fyrir því að hafa, að finna vitið í því. Kraftaskáld. En hvað er það, sem okkur er sagt í þessari kynsjasögu um Þorleif jarls- skáld? Eða er nokkuð vit í henni. í þeirri sögu kemur fram ákaflega sterk trú á það, sem nú er umtalsefni mitt, á mátt orðsins, mátt tungunnar — eða mátt mannsandans, mætti eins segja, því að auðvitað eru orðin og tungan ekki annað en verkfæri and- ans. Þá trú höfðu forfeður okkar, og þóttust hafa reynslu fyrir. Þeir trúðu því, að til væru kraftaskáld. Þeir trúðu því, að heiftarorð yrðu að á- hrínsorðum, einkum ef töluð voru í mikilli geðshræringu, þegar vel var fylgt á eftir, orðin borin fram af öllu afli sterks vilja. Og eins og heiftar- orð og böl-bænir gátu orðið að áhr'íns- orðum, svo var og um árnaðar-orð og heillaóskir, þegar heitur og sterkur vilji stóð á bak við. — Trúin á krafta- skáld var mjög almenn á íslandi — og reyndar víðar um lönd. Margar sög-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.