Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1921, Blaðsíða 112
110
TÍMARIT ÞJÓÐRÆIvNISTÉLAGS ÍSLENDINGA
andstæSinga (nú dómsmálaráSherra).
Töldu þeir báðir víst, aS þaS yrSi aúS-
sótt mál, a'S fá kröfum þessum full-
nægt, ef myndin yrði isett á þinghús-
flötinn. Fékk B. L. Baldwinson nokkru
-seinna samþykt stjórnafformannsins
fyrir því. Sama nefndin var endur-
kosin á fundinum, er stóð fyrir sam-
skotunum, með sömu embættaskipun
og verið hafði. Var ben't á það af
S. B. Brynjólfsson og B. L. Baldwin-
-son, og fleirum, að allmiklu fé í viðbót
við þær 2000 'krónur, myndi þuffa að
safna, elf reisa adtti stali undir mynd-
ina, er henni væri samboðinn, því ölí-
um fanst að stallur sá, er uppdráttur-
inn gerði ráð fyrir, vera ált of veiga-
-lítill.
■ Ut af samiþyiktum fundarins er spurð
ust með blöðunum, voru fundir
baldnir í bygðarlögunum ýmsu, til
þess að ræða um, hvar myndin skyldi
standa. Var fundur boðaður og hald-
inn að Gimli 8. jan. 1912. Þar varð
sem næst einróma álit fundarmanna,
að miyndin ætti að standa í Gimlibæ.
Væri það eina íslenzka þorpið í fýllk-
inu og þess utan fyrsta og elzta land-
nám íslendinga í Manitóba. Var 'kosin
15 manna nefnd, er fara skyldi á fund
Winnipegnefndarinnar og krefjást
þessa- Attu nefndirnar fund með sér
30. janúar, en komu sér eigi saman.
Áleit Winnipegnefndin, að hinn sjálf-
kjörni staður roiyndarinnar væri Winni-
pegborg, þar sem flestir Islendingar
ættu heima, og myndin væri helzt fyr-
ir allra augsýn, og ákvað svo nokkru
seinna, að svo s'kýldi vera. Urðu
nokkrar deilur um þétta, en óánægja
eigi mikil, og 'féll svo það mál niður.
Myndin var send vestur snemma
vetrarins, og kdm til Winnipeg um
miðjan marz. Var henni þá fyrst kom-
ið til geymslu, enda enn eigi ákveðið,
hvar hún skyldi standa. Var hún flutt
á prentsmiðju Lögbergs og komið þar
fyrir, og átti að bíða þar þess tíma, að
henni yrði kcmið upp, er eigi var gert
ráð fyrir, að orðið gæti á næjstkomandi
tveimur árum, en að þeim tíma liðn-
um myndi þinghússmíðinni lokið og
eitthvað fastara ákveðið með háskól-
ann, svo velja mætti um stað. En
þetta fór nokkuð á annan veg.
Árið 1913 var byrjað á þinghúss-
smíðinni. Sumarið eftir skal'l á heims-
ófriðurinn mikli, er kom í opna skjöldu
stjórnendum og þjóð í Canada, er
eigi áttu ófriðar von. I flaustrinu og
ráðleysinu, er fýlgdi friðslitunum,
létu .flestir stjórnendur hætta við öll
opinber verlk, er eigi voru meira en rétt
hafin, til þess að spara fé til herkostn-
aðar. Var þá hætt við þinghússmíð-
ina um stund. Vorið 1915 urðu stjórn-
arskifti í fylkinu, og 'Iét þá hin nýja
Stjórn, er til valda kom, hefja rann-
sókn yfir hinni 'fráfarandi stjórn út af
fjareyðslu í sambandi við ýms opinber
fyrirtæki, og þar á meðal verkaveit-
inguna við hið nýja þinghús- Drógst
nú simlíðin enn um hríð, og var eigi á
henni byrjað fyr en árið 1916. Gekk
þá alt seinna, en upphaflega var búist
við, og stöfuðu tafir þær af ástandi því
í landinu, er stríðið hafði skapað. Var
því verkinu eigi 'lokið fyr en á síðast-
liðnu vori (1921). Þá fór eigi betur
með háskólann. Ekkert varð af því,
að reistar yrðu nýjar byggingar fyrir
hann, og hefir við það setið til þessa.
Allann þenna tíma beið mynd Jóns
Sigurðssönar þess, að hún yrði sett
upp. Nefndin sundraðist. Fjórir
helztu mennirnir önduðust á þessum